Menning
Þrykkjan lógó
Þrykkjan lógó
Þrykkjan lógó

11.12.2008

Söngkeppni Þrykkjunnar

Föstudagskvöldið 12. desember verður söngkeppni Þrykkjunnar haldin kl. 20 í Sindrabæ. Í ár eru sex söngatriði og eru unglingarnir búnir að æfa sig í vetur undir dyggri leiðsögn þeirra Nönnu Halldóru Imsland og Elvars Braga Kristjónssonar. Búið er að koma saman eðalhljómsveit til að spila undir. Sveitina skipa þeir Elvar Bragi, Elías Tjörvi Halldórsson, Hafþór Smári Imsland og Gunnar Ásgeirsson. Tvö efstu atriðin fara svo áfram í söngkeppni SamAust, sem er landshlutakeppni haldin á Austurlandi þar sem keppt er um að komast í stóru Samféskeppnina sem haldin er í Reykjavík í febrúar.

Við hvetjum mömmur og pabba, afa og ömmur og já bara alla sem hafa áhuga á, að koma til að sjá og hvetja unglingana okkar áfram.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica