Menning

Menningarverðlaun fyrir 2007

Annáll Menningarmiðstöðvar 2008 - 19.12.2008 Menning

Árið 2008 er búið að vera annasamt ár hjá Menningarmiðstöð Hornafjarðar. Aðsókn á starfsemi Menningarmiðstöðvarinnar hefur verið góð í ár og menningarlífið hefur blómstrað. Má áætla að gestir að söfnum, viðburðum og sýningum séu um 43.000 og þá eru ótaldir þeir sem hafa sótt ráð og aðstoð hjá Menningarmiðstöðinni við ýmis undirbúning viðburða, styrkumsóknir og annað. Menningarmiðstöðin hefur í vaxandi mæli boðið fyrirtækjum, hópum og einstaklingum á svæðinu ráðgjöf við að byggja upp menningartengda ferðaþjónustu og eða aðstoð við að halda viðburði, ásamt því að standa sjálf fyrir viðburðum og á því er engin breyting í ár. Lesa meira
 
Jólasveinn í heimsókn í Gömlubúð

Jólasveinar í Gömlubúð - 18.12.2008 Menning

Á sunnudaginn síðasta komu kátir sveinar í heimsókn í Gömlubúð, en það voru þeir Gluggagægir, Kjötkrókur og Kertasníkir. Þegar börnin komu í Gömlubúð var jólasveinana hvergi að finna, svo að börnin brugðu á það ráð að leita að jólasveinunum í nágrenninu. Þeir fundust svo stuttu seinna í Sílavík, en þeir höfðu ákveðið að stríða krökkunum aðeins og fela sig fyrir þeim, enda vissu þeir að krakkarnir myndu leita að þeim. Jólasveinarnir skoðuðu svo safnið með börnunum þegar til baka var komið og svo var brugðið á leik, þar sem að krakkarnir kenndu jólasveinunum til dæmis að spila á spil. Svo var sungið og spilað á harmonikku. Um 80 börn og aðstandendur mættu til að hitta jólasveinana og það var mikið fjör. Lesa meira
 
Bjarni Friðrik og Árdis Drífa

Söngkeppni Þrykkjunnar - úrslit - 18.12.2008 Menning

Síðastliðið föstudagskvöld var söngkeppni Þrykkjunnar og má með sanni segja að þetta hafi verið hörð keppni. Allir keppendur stóðu sig mjög vel og var það erfitt val fyrir dómnefnd að velja tvö efstu sætin. Á endanum urðu fyrir valinu Bjarni Friðrik Garðarsson sem vann og tók þar af leiðandi Söngvasann með sér heim í annað sinn, og í öðru sæti var Árdís Drífa Birgisdóttir. Þau fara því fyrir okkar hönd í Söngkeppni SamAust og eiga án efa eftir að standa sig með prýði. Lesa meira
 
Hlynur og Ída Mekkín

Sýningin Graðaloftið - 17.12.2008 Menning

Á fimmtudaginn 18. desember kl. 16 opnar ljósmynda- og málverkasýningin "Graðaloftið" á vegum Hlyns Pálmasonar. Eru allir velkomnir og verður boðið upp á kaffi og smákökur. Á þessari sýningu verða ljósmyndir, olíumálverk og mixed mediaverk. Sýningin verður opin alla daga fram að jólum frá kl. 16 - 19 nema á Þorláksmessu verður opið til kl. 23. Þetta er þriðja sýning hans hér á Hornafirði og er spennandi að fylgjast með listsköpun hans ár frá ári og á hann eflaust bjarta framtíð framundan sem listamaður. Lesa meira
 
Þrykkjan lógó

Söngkeppni Þrykkjunnar - 11.12.2008 Menning

Föstudagskvöldið 12. desember verður söngkeppni Þrykkjunnar haldin kl. 20 í Sindrabæ. Í ár eru sex söngatriði og eru unglingarnir búnir að æfa sig í vetur undir dyggri leiðsögn þeirra Nönnu Halldóru Imsland og Elvars Braga Kristjónssonar. Búið er að koma saman eðalhljómsveit til að spila undir. Sveitina skipa þeir Elvar Bragi, Elías Tjörvi Halldórsson, Hafþór Smári Imsland og Gunnar Ásgeirsson. Tvö efstu atriðin fara svo áfram í söngkeppni SamAust, sem er landshlutakeppni haldin á Austurlandi þar sem keppt er um að komast í stóru Samféskeppnina sem haldin er í Reykjavík í febrúar. Lesa meira
 
Sigrún Eldjárn les 2008

Hornfirðingar gera betur! - 08.12.2008 Menning

Um daginn skrifaði ég lítinn pistil sem ég kallaði Hornfirðingar - heimabyggðin býður betur þar sem Hornfirðingum var bent á alla þá fjölbreyttu viðburði sem biðu þeirra fyrstu helgina í desember. Þátttaka Hornfirðinga sló öll met þessa helgi og ástæða til að segja í dag eftir þessa viðburðaríku helgi að Hornfirðingar gera betur!. Allir viðburðir voru vel sóttir, veitingahúsin buðu sínar bestu kræsingar og auk Hornfirðinga kom hópur gesta kom um langan veg, naut viðburðanna og góðs matar. Lesa meira
 
Markadsdagur í Nýheimum

Stefnir í metþátttöku á jólamarkaðnum - 04.12.2008 Menning

Laugardaginn 6. desember verður 22. markaður Markaðstorgs Hornafjarðar haldinn í Miðbæ og Nýheimum. Allt stefnir í metaðsókn en nú þegar hafa 40 aðilar skráð sig til þátttöku og verða efri hæð Nýheima ásamt Bókasafni einnig nýtt fyrir söluborð að þessu sinni. Lokað verður fyrir umferð bíla á milli Miðbæjar og Nýheima meðan á markaði stendur. Mikið úrval af matvöru úr matarkistunni Hornafirði verður til sölu s.s. jólaendur, svínakjöt, reyktur áll, jöklableikja, kartöflur og annað grænmeti, alls kyns fiskmeti og bakkelsi svo eitthvað sé nefnt. Handverksfólk mun selja úrval listmuna úr tré, gleri, leir og garni en föndurvara og hannyrðaefni verður líka á boðstólum. Lesa meira
 
Frostrósir 2008

Frostrósir á Höfn með fríðu föruneyti - 03.12.2008 Menning

Á föstudaginn 5. desember munu Frostrósir koma til Hornafjarðar og halda Jólatónleika í Íþróttahúsinu. Frostrósahópurinn er á ferð um landið eins og í fyrra og koma fram í kirkjum og samkomuhúsum í nokkrum af helstu kaupstöðum landsins. Í fyrra fengu þau einstakar viðtökur með tvísettum tónleikum á öllum stöðum og allsstaðar komust færri að en vildu. Lesa meira
 
Pakkhúsið séð frá bryggju

Upplestur rithöfunda í Pakkhúsinu - 02.12.2008 Menning

Hinn árlegi upplestur rithöfunda í Pakkhúsinu verður á morgun miðvikudag 3. desember kl. 20:00. Alls eru það sex rithöfundar sem heimsækja okkur í þetta skipti en þeir eru barnabókahöfundurinn Sigrún Eldjárn sem les úr bók sinni "Eyja sólfuglsins", ljóðskáldið Þórunn Erlu-Valdimarsdóttir með ljóðabók sína "Loftnet klóra himin", Jóna Á. Gísladóttir með bók sína "Sá einhverfi og við hin", Þorvaldur Kristinsson les úr ævisögunni "Lárus Pálsson leikari", Guðmundur Andri Thorsson les úr skáldsögunni "Segðu mömmu að mér líði vel" og Sjón les úr bók sinni "Rökkurbýsnir". Lesa meira
 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica