Menning
Þórbergssetur um vetur
Þórbergssetur um vetur
Þórbergssetur um vetur

24.11.2008

Í aðdraganda jóla

Sunnudaginn 30. nóvember, þann fyrsta í aðventu verður dagskrá í Þórbergssetri sem kallast Í aðdraganda jóla, þjóðtrú og alþýðumenning. Fjallað verður um alþýðumenningu og m.a. lesin upp gömul aðventusaga úr Suðursveit sem segja má að sé efnislega skyld aðventu Gunnars Gunnarssonar og þeirri lífsbaráttu er tengdist því að leggja sig í lífshættu við að bjarga fé af fjalli. Einnig ætlar Guðjón Sveinsson rithöfundur frá Breiðdalsvík að koma í heimsókn og kynna ljóðabók sem hann gaf út fyrir skömmu.

Minnst verður á alþýðuskáldin á Hofi í Öræfum á 19.öld og vitnað í umfjöllun Einars Braga um þau. Leitað hefur verið til alþýðuskálda í Skaftafellssýslu og þeim boðið að koma með efni, en ekki er ljóst á þessari stundu hve margir mæta.
Síðan mun Kári Kristjánsson starfsmaður Vatnajökulsþjóðgarðs verða með myndasýningu þar sem hann ferðast meðfram norðurjaðri Vatnajökuls og um Öskjusvæðið. Dagskráin ber nafnið Þytur eilífðarinnar og er þriðja í frábærri fyrirlestraröð hans undir nafninu Ferðalag um lendur Vatnajökulsþjóðgarð. Aðventukaffi verður á borðum og séra Einar ætlar að lífga upp á jólastemninguna með því að setjast við píanóið. Dagskráin hefst klukkan 14:00. Vonandi verða veðurguðirnir okkur hliðhollir þennan dag þannig að fólk úr allri sýslunni sjái sér fært að ferðast um sveitirnar og njóta skemmtilegrar dagskrár í byrjun aðventu.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica