Menning
Frostrósir
Frostrósir
Frostrósir

11.11.2008

Hornfirðingar - heimabyggðin býður betur

Að venju verður mikið um að vera í menningarlífi Hornfirðinga í desember. Stærsti viðburðurinn verður án efa heimsókn Frostrósa sem verða með tónleika í Íþróttahúsinu föstudaginn 5. desember kl. 20:30. Frostrósir koma með 6 söngvara, strengjakvartett og hljómsveit og má búast við frábærri jólaskemmtun fyrir alla fjölskylduna. Meðal flytjenda eru Margrét Eir, Hera Björk, Guðrún Árný, Jóhann Friðgeir og Edgar Smári. Rétt er að benda Hornfirðingum á að miðasala er hafin á midi.is og er miðaverð kr. 3490. Sömu helgi verður hinn margrómaði jólamarkaður okkar Hornfirðinga með öllum þeim kræsingum, handverki og uppákomum sem slíkum markaði fylgir.

Markaðurinn verður laugardaginn 6. desember og verður í Nýheimum og Miðbæ. Nýheimar verða opnir gestum og gangandi á Nýheimadegi föstudaginn 5. desember og á laugardeginum verður einnig boðið uppá uppákomur í Nýheimum. Rithöfundakynning verður miðvikudaginn 3. desember í Pakkhúsinu þar sem góðir gestir heimsækja Hornfirðinga og lesa uppúr nokkrum þeirra bóka sem koma út fyrir jólin. Það er því mikið um að vera þessa fyrstu viku jólamánaðarins og ástæða fyrir Hornfirðinga að halda sig við heimabyggð og njóta þessarar fjölbreyttu dagskrár



Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica