Menning
Sigurdur-Einarsson-malverk
Sigurdur-Einarsson-malverk
Málverk eftir Sigurð Einarsson alþýðumálara (úr myndasafni)

10.11.2008

Styrkir til menningarmála og menningartengdrar ferðaþjónustu

Menningarfulltrúi Menningarráðs Austurlands, Signý Ormarsdóttir verður á Höfn, í Nýheimum fimmtudaginn 13. nóvember frá kl.13-17. Hægt verður að leita ráða hjá henni um styrkumsóknir og ræða þær hugmyndir sem íbúar sveitarfélagsins hafa og varða menningarmál og uppbyggingu menningartengdrar ferðaþjónustu. Umsóknarfrestur um styrki Menningarráðs er 1. desember. Menningarráð Austurlands veitir styrki til menningararfs og menningartengdrar ferðaþjónustu á Austurlandi. Einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Austurlandi geta sótt um styrki til margvíslegra menningarverkefna en skilyrði er að umsækjendur sýni fram á mótframlag.

Menningarráðið hefur ákveðið að árið 2009 hafi þau verkefni forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:

  • Samstarf milli tveggja eða fleiri aðila, byggðarlaga eða listgreina og uppsetningu viðburða á fleiri en einum stað
  • Verkefni sem stuðla að nýjungum á sviði lista
  • Verkefni sem stuðla beint að fjölgun starfa
  • Verkefni sem hafa unnið sér sess og viðurkenningu og eru vaxandi.

 

Enska

Auglýsing 

Úthlutunarreglur 2009

Menningarráð vidvera

         

Íslenska

Auglýsing 

Úthlutunarreglur 2009

Menningarráð vidvera

  

 

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica