Tónlistarviðburður á Hótel Höfn
Tríó Ómars Guðjónssonar er á tónleikaferðalagi í kringum landið og kom ekkert annað til greina en að halda tónleika á Höfn þar sem að í æðum Ómars rennur þykkt og mikið meisablóð. Með Ómari leika hinir frábæru músikantar Matthías MD Hemstock á trommur og Þorgrímur Jónsson á kontrabassa. Leikin verða lög af nýútkominni geislaplötu Ómars Fram Af sem hefur fengið ákaflega góð viðbrögð, en á henni er að finna sambland af jazz, rokki og poppi, tónlist sem allir eiga að geta notið.
Hér eru nokkrir dómar sem hafa birst í fjölmiðlum eftir útgáfu Fram Af:
4 1/2 störnur - Morgunblaðið
4 störnur - Fréttablaðið
4 stjörnur - DV
Djöfull er þetta flott músík! - HI, rás 1
Fram Af er heilsteypt og sannfærandi verk sem ætti að höfða til breiðs hóps unnenda djass og popptónlistar - TJ, Fréttablaðið
Einstaklega vel heppnuð plata - frábær spilamennska og frjó lagræn hugsun - tækifæri að hlusta á tóngaldur tríósins - VL, Morgunblaðið
Þennan disk mun ég setja í spilarann og hlusta oft á og ég mun leyfa gestum að hlusta á hann líka - ÁBJ, DV
Tríóið verður með tónleika á Hótel Höfn laugard. 8. nóvember kl. 21 og ætti enginn að láta þessa tónleika fram hjá sér fara.
Fyrr um daginn verða þeir félagar með kennslufyrirlestur á Hótel Höfn fyrir nemendur Tónlistarskólans. Þeir munu spila þar nokkur lög ásamt því að deila hugsjónum sínum um tónlist og tónlistarkennslu. Einnig munu þeir fjalla um það hvernig þeir nálgast mismunandi músik á sinn hátt ásamt að deila reynslu sinni sem starfandi tónlistarmenn á Íslandi og víðar.
.jpg)


