Sinfónían á ferð og flugi
Sinfóníuhljómsveit Íslands verður með tónleika í Íþróttahúsinu á Höfn fimmtudaginn 6. nóvember.
Á efnisskrá verða fimmta sinfónía Beethovens, karnivalforleikur eftir Dvorák og kafli úr hinni ástsælu tónlist Edvard Grieg við Pétur Gaut. Fyrsti konsertmeistari hljómsveitarinnar, Sigrún Eðvaldsdóttir, leikur einleik með hljómsveitinni í Rómönsu eftir Árna Björnsson og fyrsta kaflann úr fiðlukonsert Sibeliusar. Sigrún lék einmitt konsertinn á tónleikum 16.október sl. og í fimm stjörnu dómi í Morgunblaðinu sagði Jónas Sen m.a. "Sigrún gæddi leik sinn sterkum tilfinningum og spilaði af ótrúlegum glæsileik". Stjórnandi er Petri Sakari.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.00. Aðgangur er ókeypis.
Allir hvattir til að mæta
Efnisskrá:
Dvorák: Karnivalforleikur
Grieg: Morgunstemning
Árni Björnsson: Rómansa op.6
Sibelius: Fiðlukonsert, 1. kafli
Beethoven: Sinfónía nr. 5



