Menning

Þórbergssetur

Aðventan í Suðursveit - 29.11.2008 Menning

Á morgun fyrsta sunnudag í aðventu verður þjóðleg dagskrá í Þórbergssetri þar sem kynntar verða nýútkomnar bækur og fjallað um alþýðumenningu. Dagskráin er fjölbreytt, m.a. er heimafengið efni úr sjóði minninganna þar sem lýst er afreksför Ingimars Bjarnasonar á Jaðri og Bjarna Þórhallssonar á Breiðabólsstað í Hvannadal um hávetur. Einnig hafa ljóðskáld af Austurlandi boðað komu sína og það verður myndasýning frá fáförnum slóðum norðan Vatnajökuls.Skaftfellskum hagyrðingum hefur verið boðið á staðinn með eigin ljóð og Pálína Þorsteinsdóttir í Svínafelli les ljóð eftir föður sinn Þorstein Jóhannsson skólastjóra. Lesa meira
 
Þórbergssetur um vetur

Í aðdraganda jóla - 24.11.2008 Menning

Sunnudaginn 30. nóvember, þann fyrsta í aðventu verður dagskrá í Þórbergssetri sem kallast Í aðdraganda jóla, þjóðtrú og alþýðumenning. Fjallað verður um alþýðumenningu og m.a. lesin upp gömul aðventusaga úr Suðursveit sem segja má að sé efnislega skyld aðventu Gunnars Gunnarssonar og þeirri lífsbaráttu er tengdist því að leggja sig í lífshættu við að bjarga fé af fjalli. Einnig ætlar Guðjón Sveinsson rithöfundur frá Breiðdalsvík að koma í heimsókn og kynna ljóðabók sem hann gaf út fyrir skömmu. Lesa meira
 
Njála fyrir börn

Njála fyrir börnin - sýning á myndskreytingum Margrétar E. Laxness - 20.11.2008 Menning

Í hádeginu, föstudaginn 21. nóvember opnar sýningin Njála fyrir börnin í Nýheimum. Myndirnar eru eftir Margréti E. Laxness úr bókinni Njála í endursögn Brynhildar Þórarinsdóttur. Njála er stytting og endursögn á Njálssögu með glæsilegum myndskreytingum Margrétar. Með útgáfu þessarar bókar hefur Brynhildur séð til þess að Njáls saga er aðgengileg börnum og unglingum á auðlæsilegu máli og aukið þar með áhuga þeirra á Íslendingasögum. Bókin gefur ungum lesendum innsýn í fornsagnaheim þar sem mannlífið iðar af skemmtilegum frásögnum og hetjur ríða um héruð. Lesa meira
 
Kontrabassi

Tónlist fyrir alla - 13.11.2008 Menning

Mánudaginn 17. nóvember verða skólatónleikar í Hafnarkirkjuí tengslum við "Tónlist fyrir alla". Fjórir landsþekktir tónlistarmenn, þau Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Gunnar Hrafnsson, Björn Thoroddsen og Ásgeir Óskarsson flytja fjölbreytta og skemmtilega dagskrá sem flutt hefur verið bæði innanlands og utan. Dagskráin byggir á íslenska þjóðlaginu "Ljósið kemur langt og mjótt", en tónlistarmennirnir, undir forystu Ólafíu Hrannar fara með lagið í "reisu" um heiminn í stíl og látbragði. Lesa meira
 
Hljóðbókasafn

Bókasafn Menningarmiðstöðvar eykur þjónustu við sjónskerta og lesblinda. - 13.11.2008 Menning

(Ath! til að stækka skjátextann er hægt að halda niðri Ctrl hnappnum á lyklaborðinu og skrolla upp með músinni) Bókasafn MMH hefur gert samning við Blindrabókasafn Íslands og eykur nú framboð á hljóðbókum fyrir sjónskerta og lesblinda. Samkvæmt gerðum samningi þurfum við að fara eftir reglum Blindarbókasafns varðandi útlán og vottorð. Lesblindir fá vottorð hjá námráðsgjöfum, kennurum og öðrum fagaðilum. Lesblindir eldri en 30 ára geta komið á safnið án vottorðs og rætt við bókaverði og þeir sem eru orðnir 80 ára þurfa ekki vottorð. Sjónskertir fá vottorð hjá augnlækni. Lesa meira
 
Frostrósir

Hornfirðingar - heimabyggðin býður betur - 11.11.2008 Menning

Að venju verður mikið um að vera í menningarlífi Hornfirðinga í desember. Stærsti viðburðurinn verður án efa heimsókn Frostrósa sem verða með tónleika í Íþróttahúsinu föstudaginn 5. desember kl. 20:30. Frostrósir koma með 6 söngvara, strengjakvartett og hljómsveit og má búast við frábærri jólaskemmtun fyrir alla fjölskylduna. Meðal flytjenda eru Margrét Eir, Hera Björk, Guðrún Árný, Jóhann Friðgeir og Edgar Smári. Rétt er að benda Hornfirðingum á að miðasala er hafin á midi.is og er miðaverð kr. 3490. Sömu helgi verður hinn margrómaði jólamarkaður okkar Hornfirðinga með öllum þeim kræsingum, handverki og uppákomum sem slíkum markaði fylgir. Lesa meira
 
Sigurdur-Einarsson-malverk

Styrkir til menningarmála og menningartengdrar ferðaþjónustu - 10.11.2008 Menning

Menningarfulltrúi Menningarráðs Austurlands, Signý Ormarsdóttir verður á Höfn, í Nýheimum fimmtudaginn 13. nóvember frá kl.13-17. Hægt verður að leita ráða hjá henni um styrkumsóknir og ræða þær hugmyndir sem íbúar sveitarfélagsins hafa og varða menningarmál og uppbyggingu menningartengdrar ferðaþjónustu. Umsóknarfrestur um styrki Menningarráðs er 1. desember. Menningarráð Austurlands veitir styrki til menningararfs og menningartengdrar ferðaþjónustu á Austurlandi. Einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Austurlandi geta sótt um styrki til margvíslegra menningarverkefna en skilyrði er að umsækjendur sýni fram á mótframlag. Lesa meira
 
Ómar Guðjónsson

Tónlistarviðburður á Hótel Höfn - 04.11.2008 Menning

Tríó Ómars Guðjónssonar er á tónleikaferðalagi í kringum landið og kom ekkert annað til greina en að halda tónleika á Höfn þar sem að í æðum Ómars rennur þykkt og mikið meisablóð. Með Ómari leika hinir frábæru músikantar Matthías MD Hemstock á trommur og Þorgrímur Jónsson á kontrabassa. Leikin verða lög af nýútkominni geislaplötu Ómars Fram Af sem hefur fengið ákaflega góð viðbrögð, en á henni er að finna sambland af jazz, rokki og poppi, tónlist sem allir eiga að geta notið. Hér eru nokkrir dómar sem hafa birst í fjölmiðlum eftir útgáfu Fram Af: Lesa meira
 
Sinfóníuhljómsveit Íslands

Sinfónían á ferð og flugi - 03.11.2008 Menning

Sinfóníuhljómsveit Íslands verður með tónleika í Íþróttahúsinu á Höfn fimmtudaginn 6. nóvember. Á efnisskrá verða fimmta sinfónía Beethovens, karnivalforleikur eftir Dvorák og kafli úr hinni ástsælu tónlist Edvard Grieg við Pétur Gaut. Fyrsti konsertmeistari hljómsveitarinnar, Sigrún Eðvaldsdóttir, leikur einleik með hljómsveitinni í Rómönsu eftir Árna Björnsson og fyrsta kaflann úr fiðlukonsert Sibeliusar. Sigrún lék einmitt konsertinn á tónleikum 16.október sl. og í fimm stjörnu dómi í Morgunblaðinu sagði Jónas Sen m.a. "Sigrún gæddi leik sinn sterkum tilfinningum og spilaði af ótrúlegum glæsileik". Stjórnandi er Petri Sakari. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica