Menning
Þórbergsþing
Þórbergsþing
Þórbergsþing

11.10.2008

Málþingi um Einar Braga frestað til vorsins

Málþinginu um Einar Braga rithöfund sem halda átti í Þórbergssetri 18. og 19. október næstkomandi hefur verið frestað til vorsins. Einar Bragi var vorsins barn, fæddur á Eskifirði 7. apríl 1921. Afar áhugaverð dagskrá um Einar Braga og atómskáldin var tilbúin en einnig átti að fjalla um ást Einars Braga á Suðursveit. Móðir hans Borghildur Einarsdóttir var fædd í Gamlagarði í Borgarhöfn og var náfrænka Þórbergs Þórðarsonar. Einar dvaldi sem barn í sveit bæði í Suðurhúsunum í Borgarhöfn og á Sléttaleiti hjá Sveini móðurbróður sínum.

Eitt af ljóðum Einars Braga heitir Siggi í Bæ.
Í ljóðinu er fjallað um ferðalag hans með Sigurði Ólafssyni þegar hann 10 ára drenghnokki var sendur sjóleiðina til Hornafjarðar og síðan á vélbáti að Bjarnahraunssandi með timbur og nauðþurftir til handa Suðursveitungum.

Dumbungslegur júnídagur
dauður sjór og rjómalogn

hægt skríður fleytan
suður með söndum
með sykur timbur olíu og mjöl

í Suðursveit
ætla bændurnir að byggja
og búrin eru þegar orðin tóm

sjávarþjarkurinn
Siggi í Bæ
er bjargvættur bónda

í stýrishúsi húkir lítill peyi
á hráolíudúnk
og ælir
ælir
ælir
oná gólfið

Hlýir voru sjóvettlingar þínir
Siggi í Bæ
hlýr var rómurinn er rumdi
djöfull er að sjá drenginn maður
jahá mahður
og hlýr var straumurinn er steig
frá stýrishússgólfinu þínu
og hríslaðist um hrúgaldið litla
á hráolíudúnknum
grannan kropp
í gráum frakka

nú höfum við eignast sorgina saman
Siggi í Bæ

Með hækkandi sól á vordögum er fyrirhugað að hefja sumarstarfið í Þórbergssetri með þessu áhugaverða málþingi um verk Einars Braga og tengsl hans við Suðursveit.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica