Menning
Prjónað og heklað
Prjónað og heklað
Prjónað og heklað
Mynd 1 af 3
1 2 3

07.10.2008

Prjónadagur í Menningarmiðstöðinni

Menningarmiðstöðin bryddaði upp á þeirri nýung sl. laugardag að bjóða upp á hannyrðadag á bókasafninu þar sem konur gátu komið með prjónana sína eða aðrar hannyrðir og um leið notið góðs félagsskapar milli kl 14-16. Guðný Svavarsdóttir var gestgjafinn fyrir Menningamiðstöðina og sá um að allir fengju kaffi og meðlæti. Mæting var það góð að Guðný sagði að prjónadagur yrði áfram fyrsta laugardag í mánuði og vonandi að sem flestar konur kæmu. Þetta er ekki bara gaman heldur líka fræðandi því þarna eru konur sem eru engir viðvaningar í prjónalistinni og eru áreiðanlega með góð ráð handa þeim sem skemmra eru komnar í prjónaskapnum.

Bókasafnið á mikið safn af munstrum og munsturbókum fyrir allskonar hannyrðir og óhætt að segja þeim sem gaman hafa af að skoða og grúska í slíku að þær ættu ekki að láta sig vanta næsta prjónadag í Menningarmiðstöðinni.


Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica