Menning

Bangsastund 2008

Líf og fjör í Nýheimum - 31.10.2008 Menning

Það hefur verið líf og fjör í Nýheimum að undanförnu en nemendur úr Grunnskóla Hornafjarðar hafa síðustu tvær vikur heimsótt Bókasafn Menningarmiðstöðvar í þeim tilgangi að fá safnkennslu. Þá komu í heimsókn forvitnir nemendur úr grunnskólanum en þeir vildu kynna sér þá starfsemi sem fram fer í Nýheimum. Þeir heimsóttu Bókasafn, Háskólasetur, Nýsköpunarmiðstöð og Matís, fræddust um þjóðgarða og frumkvöðla og spurðu spekingslegra spurninga svo sem hvað væri mikið af snúrum á Háskólasetri. Ónákvæm talning leiddi í ljós að á einni lítilli skrifstofu voru að minnsta kosti 14 snúrur. Lesa meira
 
Pitchfork Rebellion

Spennandi tónleikar í Pakkhúsinu 1. nóvember - 31.10.2008 Menning

Folk-rock hljómsveitin Unoriginal Jon og jass hljómsveitin Pitchfork Rebellion verða með tónleika í Pakkhúsinu annað kvöld. Tónleikarnir hefjast kl. 19.00 og hvor hljómsveit spilar í amk.eina og hálfa klukkustund. Hægt er að mæta hvenær sem er á meðan tónleikunum stendur. Hljómsveitin Unoriginal Jon var stofnuð snemma árs 2008 af þeim Sigga Palla, Rögga, Jóni Karli og Meisa. Þeir komu fram á nýliðinni Air Waves hátíð við góðar undirtektir. Lesa meira
 
Flottar bækur

Bókagjafir á Krakkakoti - 20.10.2008 Menning

Í morgun, 20.okt., fóru starfsmenn Menningarmiðstöðvar og gáfu krökkunum á Krakkakoti bækur um kisurnar Glingló og Dabba og hundinn Rex sem lenda í hinum ýmsu ævintýrum, sem gerast við rammíslenskar aðstæður. Vinirnir í bókunum fara meðal annars í bryggjuveiði, fjöruferð og eggjaskoðunarferð. Öll börnin á Krakkakoti fengu tvær bækur að gjöf og voru hæstánægt með gjöfina. Félagarnir í bókunum eiga heimasíðu þar sem hægt er að finna ýmsa skemmtilega leiki, vísnahorn, litabók, uppskriftir og margt fleira og er skemmtileg afþreying fyrir alla grallara. Lesa meira
 
Heimsókn í Nesjaskóla

Heimsókn í Nesjaskóla - 20.10.2008 Menning

Á föstudaginn fór Menningarmiðstöðin í heimsókn í Nesjaskóla til þess að segja krökkunum þar frá barnastarfinu sem að fer fram á sumrin. Krakkarnir fengu að vita ýmislegt um ferðirnar og tilganginn með þeim, sem er sá að læra um umhverfi og náttúru í gegnum leik. Siggi sagði krökkunum reynslusögur enda er hann búin að vera með í barnastarfinu frá upphafi og Gulla sagði þeim frá ferðuðum í sumar. Einnig fengu krakkarnir að segja frá sinni upplifun úr ferðunum sem þeir hafa farið í og þau fengu að sjá myndir úr nokkrum af ferðunum frá því í sumar eins og Steinaleitinni, fuglaskoðuninni og óvissuferðinni. Lesa meira
 
Bókalestur á Lönguhólum

Bókagjöf til leikskólabarna á Hornafirði - 17.10.2008 Menning

Krakkarnir á Lönguhólum voru hressir og kátir þegar starfsmenn Menningarmiðstöðvarinnar heimsóttu þá í morgun. Gestirnir komu færandi hendi með bækur um Glingló, Dabba og Rex. Hvert barn fékk tvær bækur en höfundur bókanna, Selma Hrönn Maríudóttir, hafði haft veður af heimsókn leikskólanna á sýninguna "Þetta vilja börnin sjá!". Gjöfinni fylgdu bestu kveðjur frá Gröllurunum í Sandgerði til leikskólabarnanna á Hornafirði með von um að þau hafi gaman af. Lesa meira
 
Afhending viðurkenninga

Sumarstarfið í MMH - 17.10.2008 Menning

Í gær, 16. okt., var haldin uppskeruhátíð sumarlesturs og barnastarfs Menningarmiðstöðvar. Um 40 börn komu og fengu viðurkenningar fyrir þátttöku í sumarlestrinum. Einnig voru til sýnis myndir frá ferðum barnastarfsins í sumar og allir fengu köku og djús. Barnastarfið heldur áfram af fullum krafti næsta sumar og dagskrá næsta sumars verður auglýst á síðu Menningarmiðstöðvar þegar þar að kemur. Hlökkum til að sjá ykkur. Starfsfólk Menningarmiðstöðvar. Lesa meira
 
krakkastarf

Uppskerudagur fyrir barnastarfið - 14.10.2008 Menning

N.k. fimmtudag, 16. október verður uppskerudagur sumarstarfs barna a Menningarmiðstöðinni. Veittar verða viðurkenningar fyrir sumarlesturinn og sýndar myndir ur ferðum sumarsins. Menningarmiðstöðin hvetur alla krakka sem tóku þátt í sumarstarfinu að mæta í Bókasafnið á fimmtudaginn kl. 15.00. Lesa meira
 
Þórbergsþing

Málþingi um Einar Braga frestað til vorsins - 11.10.2008 Menning

Málþinginu um Einar Braga rithöfund sem halda átti í Þórbergssetri 18. og 19. október næstkomandi hefur verið frestað til vorsins. Einar Bragi var vorsins barn, fæddur á Eskifirði 7. apríl 1921. Afar áhugaverð dagskrá um Einar Braga og atómskáldin var tilbúin en einnig átti að fjalla um ást Einars Braga á Suðursveit. Móðir hans Borghildur Einarsdóttir var fædd í Gamlagarði í Borgarhöfn og var náfrænka Þórbergs Þórðarsonar. Einar dvaldi sem barn í sveit bæði í Suðurhúsunum í Borgarhöfn og á Sléttaleiti hjá Sveini móðurbróður sínum. Lesa meira
 
Prjónað og heklað

Prjónadagur í Menningarmiðstöðinni - 07.10.2008 Menning

Menningarmiðstöðin bryddaði upp á þeirri nýung sl. laugardag að bjóða upp á hannyrðadag á bókasafninu þar sem konur gátu komið með prjónana sína eða aðrar hannyrðir og um leið notið góðs félagsskapar milli kl 14-16. Guðný Svavarsdóttir var gestgjafinn fyrir Menningamiðstöðina og sá um að allir fengju kaffi og meðlæti. Mæting var það góð að Guðný sagði að prjónadagur yrði áfram fyrsta laugardag í mánuði og vonandi að sem flestar konur kæmu. Þetta er ekki bara gaman heldur líka fræðandi því þarna eru konur sem eru engir viðvaningar í prjónalistinni og eru áreiðanlega með góð ráð handa þeim sem skemmra eru komnar í prjónaskapnum. Lesa meira
 
Sjónvarpsþátturinn Útsvar

Hornfirðingar keppa í Útsvari í kvöld - 03.10.2008 Menning

Í kvöld, föstudagskvöldið 3.október, keppa Hornfirðingar í hinum vinsæla spurningaþætti Útsvari í Sjónvarpinu. Það er skemmtileg tilviljun að á móti þeim keppa Seltirningar en þeir voru einmitt fyrri mótherjar þeirra í Útsvari á síðasta ári. Þá unnu Hornfirðingar með 66 stigum gegn 48 í æsispennandi keppni. |Keppendur okkar að þessu sinni verða: Sigurður Örn Hannesson skjalavörður, Kristín Hermannsdóttir veðurfræðingur og Þórgunnur Torfadóttir skólastjóri. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica