Menning

Karlakórinn Þrestir

Karlakórinn Þrestir heimsækir Hornafjörð - 25.09.2008 Menning

Karlakórinn Þrestir leggur nú land undir fót og heimsækja þeir Hornafjörð á hringferð sinni um landið en allur ágóði af tónleikum í ferðinni rennur óskiptur til barnaspítala Hringsins. Tilefnið er að karlakórssönghefð í Hafnarfirði er 100 ára um þessar mundir en þá hóf stofnandi Þrasta, Friðrik Bjarnason, að stjórna drengja- og karlakór í Hafnarfirði. Þrestir voru svo stofnaðir árið 1912. Hafnarfjarðarbær heldur einnig upp á 100 ára afmæli á þessu ári. Lesa meira
 
Karlakór Hornafjarðar

35 ára afmælissýning Karlakórsins Jökuls opnar í Nýheimum - 25.09.2008 Menning

Föstudaginn 26. september verður opnuð í Nýheimum glæsileg sýning Karlakórsins Jökuls. Sýningin spannar 35 ára sögu kórsins sem var stofnaður á bændafundi árið 1972 með þátttöku manna úr flestum hreppum Austur?Skaftafellssýslu. Karlakórinn hefur starfað óslitið síðan veturinn 1973 og verður farið yfir tónleikasögu kórsins á sýningunni þar sem sýndar verða myndir frá tónleikaferðum, árshátíðum og öðrum viðburðum á plasmaskjá. Einnig eru til sýnis persónulegir munir kórmanna, ásamt kórfötunum sem þeir hafa notað í gegnum tíðina. Hægt er að hlusta á allt útgefið efni Kórsins og má þar nefna diskana Það kom söngfugl að sunnan og Í jöklanna skjóli. Lesa meira
 
Þórbergssetur

Málþing um Einar Braga rithöfund og atómskáldin - 24.09.2008 Menning

Málþingið verður haldið 18. - 19. október n.k. í Þórbergssetri og hefst kl. 14:00 á laugardegi. Verða fjölmargir áhugaverðir fyrirlestrar um lífsstarf Einars Braga út frá ýmsum sjónarhornum, sem og um þann hóp skálda sem hann er iðulega kenndur við: Atómskáldin. Meðal fyrirlesara verða rithöfundar, bókmenntafræðingar og MA nemar við Háskóla Íslands. Dagskráin verður kynnt síðar. Lesið verður úr bókum Einars Braga, en einnig farið í heimsókn að Steinum og á Sléttaleiti og skoðaðar búsetuminjar. Einar skrifaði þrjár bækur með fróðleik um Suðursveit undir heitinu, Þá varöldin önnur, þar er m.a. fjallað um búskaparhætti á Sléttaleiti á fjórða áratug síðustu aldar. Þar bjó þá Sveinn Einarsson móðurbróðir Einars, en Einar dvaldi hjá þeim hjónum á Sléttaleiti um tíma. Lesa meira
 
Friðrik Ómar

Ég hlakka mikið til að koma austur - 16.09.2008 Menning

Söngvarinn Friðrik Ómar heimsækir Hornfirðinga á tónleikaferð sinni um landið sem hefst í næstu viku og heldur tónleika í Hafnarkirkju föstudagskvöldið 19. september. Friðrik þarf vart að kynna en þessi 26 ára gamli söngvari hefur skipað sér í röð fremstu söngvara landsins á örskömmum tíma. Þetta er í fyrsta sinn sem Friðrik fer einn síns liðs um landið en hann hefur áður sungið með Guðrúnu Gunnarsdóttur og fylgt eftir þremur gullplötum þeirra sl. ár með því að syngja í kirkjum landsins. Að þessu sinni er það Grétar Örvarsson sem leikur undir á píanó og á efnisskránni eru meðal annars lög sem Vilhjálmur Vilhjálmsson gerði vinsæl og fleiri þekkt dægurlög sem Friðrik hefur gaman af að flytja. Lesa meira
 
Gömul sveitablöð

Sýning á gömlum sveitablöðum - 16.09.2008 Menning

Á bókasafninu eru nú til sýnis handskrifuð sveitablöð frá fyrri hluta síðustu aldar. Mikil gróska var í útgáfu slíkra blaða á Íslandi á þessum árum og voru Austur-Skaftfellingar engir eftirbátar annarra landsmanna í þeim efnum. Gefin voru út blöð í hverjum hreppi, flest í Nesjum, enda Nesjahreppur langfjölmennastur með Höfn innanborðs á þeim tíma. Í vörslu Héraðsskjalasafnsins eru til eftirtalin handskrifuð blöð: Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica