How to destroy the world
Margir leggja leið sína til Hornafjarðar enda rík ástæða til að heimsækja bæði heimamenn og eins njóta einstakrar náttúru. Einn gesta Hornfirðinga þetta sumarið er Pete Bishop, framleiðandi og leikstjóri. Pete er breskur og hefur unnið fjölmörg verkefni fyrir innlenda og erlenda aðila. Hann hefur margoft heimsótt Ísland og á íslenska eiginkonu. Fimmtudaginn 21. ágúst verða stuttmyndir hans How to destroy the world sýndar í Nýheimum klukkan 16:30 og eru allir velkomnir. Þessi flokkur stuttmynda samanstendur af fjórum myndum sem hver um sig er 2 mínútur að lengd. Þær heita Transport, Rubbish, Computer games og Food. Í myndunum eru neysluvenjur og umgengi nútímamannsins til umfjöllunar. Myndirnar vann hann fyrir The Discovery Channel EMEA (Europe, Middle East & Asia) og eru myndirnar nú til sýningar í 16 löndum.
Bishop skrifaði handrit myndanna í samvinnu við Appleby. Myndirnar eru frábær skemmtun með miklum boðskap og hvetjum við alla til að mæta. Þeir sem vilja afla sér frekari upplýsinga um þennan góða gest og verk hans er bent á heimasíðu hans www.petebishop.tv



