Gengið á reka
Í þessari viku fór barnastarf menningarmiðstöðvarinnar í fjöruferð á Stokksnes þar sem gengið var á reka. Krakkarnir fundu ýmislegt í fjörunni og þar á meðal flotgalla. Nokkrar flöskur fundust en engin flöskuskeyti samt, einnig fannst rekaviður, steinar, skeljar, krabbar og bein. Rúsínan í pylsuendanum var svo allir selirnir sem að krakkarnir sáu, en það voru 6-8 selir sem lágu á skeri í fjörunni og nutu veðurblíðunnar.
Næsta ferð menningarmiðstöðvarinnar er síðasta ferðin í sumar en það er óvissuferð. Muna þarf að skrá sig hjá menningarmiðstöðinni og við hlökkum til að sjá sem flesta í óvissuferðinni.



