Menning
Steinaferð 2008
Steinaferð 2008
Steinaferð 2008
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

01.08.2008

Steinaferð í Laxárdal í Nesjum

Í þessari viku fór barnastarf Menningarmiðstöðvarinnar í Steinaferð í Laxárdal í Nesjum. Krakkarnir fundu allskyns steinategundir eins og t.d. Glerhalla, Onyx, Jaspis og allskonar aðra fallega steina. Einn steinn stóð þó sérstaklega upp úr en það var grænleitur Jaspis sem að ungur drengur hér í sveit fann. Eftir vel heppnaða steinaleit var svo borðað nesti og haldið heim á leið. Þetta var mikil ævintýraferð fyrir krakkana en bíllinn festist í gljúpum árfarvegi Laxárinnar og var fengin hjálp til að losa bílinn á meðan krakkarnir fylgdust með og skemmtu sér konunglega.

Í næstu viku verður gengið á reka, það er fjöruferð, og séð hvaða furðuhluti rekur hér á land og er það næstsíðasta ferðin. Þar bíða örugglega mörg ævintýri. Síðasta ferðin verður 12. ágúst en það er óvissuferðin.
Barnastarfið í sumar hefur gengið mjög vel, krakkarnir mætt vel og upplifað margt skemmtilegt.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica