Menning

Pete-Bishop

How to destroy the world - 20.08.2008 Menning

Margir leggja leið sína til Hornafjarðar enda rík ástæða til að heimsækja bæði heimamenn og eins njóta einstakrar náttúru. Einn gesta Hornfirðinga þetta sumarið er Pete Bishop, framleiðandi og leikstjóri. Pete er breskur og hefur unnið fjölmörg verkefni fyrir innlenda og erlenda aðila. Hann hefur margoft heimsótt Ísland og á íslenska eiginkonu. Fimmtudaginn 21. ágúst verða stuttmyndir hans How to destroy the world sýndar í Nýheimum klukkan 16:30 og eru allir velkomnir. Þessi flokkur stuttmynda samanstendur af fjórum myndum sem hver um sig er 2 mínútur að lengd. Þær heita Transport, Rubbish, Computer games og Food. Í myndunum eru neysluvenjur og umgengi nútímamannsins til umfjöllunar. Myndirnar vann hann fyrir The Discovery Channel EMEA (Europe, Middle East & Asia) og eru myndirnar nú til sýningar í 16 löndum. Lesa meira
 
Paul Nedergaard

Prófessor í arkitektúr heimsækir Höfn - 14.08.2008 Menning

Paul Nedergaard, prófessor við Arkitektaháskólann í Árósum, heimsækir Höfn í dag og á morgun. Heimsókn hans er undirbúningur ferðar sem nemendur arkitektaskólans fara í á næsta ári en Nedegaard hefur komið árlega til Íslands undanfarin ár með nemendahópa, þeir mælt upp og teiknað gamlar kirkjur og önnur söguleg mannvirki. Prófessorinn hefur ákveðið að setja Hafnarvíkur-Heppu verkefnið á dagskrá arkitektaskólans á næsta ári, 2009 og stefnir að því að koma austur með hóp nemenda til uppmælinga og rannsókna það sumar. Arkitektadeild Listaháskóla Íslands verður einnig í samstarfi um þetta verkefni. Þessi heimsókn er mikilvægur liður í uppbyggingu hafnarsvæðisins og mikill fengur að fá Nedergaard og nemendur hans hingað. Lesa meira
 
Ovissuferd_sumarid_2008_058

Síðasta ferð sumarsins í barnastarfi Menningarmiðstöðvarinnar - 13.08.2008 Menning

Þá er barnastarfi Menningarmiðstöðvarinnar lokið í sumar, en það endaði með frábærri óvissuferð. Byrjað var á því að skoða kúabúið í Flatey, þar sem að Friðrik og félagar tóku á móti okkur og sýndu okkur hvernig fjós með sjálfvirku mjaltakerfi virka, en þar ganga kýrnar lausar á milli mjaltasvæðis, legusvæðis og átsvæðis. Eftir vel heppnaða heimsókn á kúabúið var svo farið í Eskey þar sem grillaðar voru pylsur og farið var í Kubb. Til þess að toppa svo ferðina fengu krakkarnir Jöklaís hjá Sigurlaugu og Jóni á Brunnhól. Lesa meira
 
Krabbi

Gengið á reka - 07.08.2008 Menning

Í þessari viku fór barnastarf menningarmiðstöðvarinnar í fjöruferð á Stokksnes þar sem gengið var á reka. Krakkarnir fundu ýmislegt í fjörunni og þar á meðal flotgalla. Nokkrar flöskur fundust en engin flöskuskeyti samt, einnig fannst rekaviður, steinar, skeljar, krabbar og bein. Rúsínan í pylsuendanum var svo allir selirnir sem að krakkarnir sáu, en það voru 6-8 selir sem lágu á skeri í fjörunni og nutu veðurblíðunnar. Lesa meira
 
Hlynur Pálmason

Stílhrein sköpunargleði - 06.08.2008 Menning

Hornfirski listamaðurinn og kvikmyndagerðarneminn Hlynur Pálmason opnaði myndlistarsýningu á Höfn í Hornafirði 3-6 júlí. Sýningin hét "Sjónræn Dagbók" og samanstóð af ljósmyndum, málverkum og tveimur veggskúlptúrum úr tré og járni. Hlynur hélt svipaða sýningu fyrir ári síðan á sama stað í sýningarsal útfrá vinnustofu hans, í Graðaloftinu. Ljósmyndirnar á sýningunni voru svart-hvítar í ramma sem Hlynur smíðaði og málaði. Þær voru teknar á filmu og svo unnar á "gamla" mátann með sérstökum aðferðum í myrkraherberginu í stað þess að notast við myndvinnsluforrit. Þetta gerði Hlynur til þess að ná fram "málverkalegum" áhrifum eins og hann sjálfur greindi frá. Vinnslan skilaði sér með áhugaverðari myndum og gaf þeim gamaldags öðruvísi útlit í stað þess að vera "spegilsléttar" og fullkomnar eins og svo oft vill verða í nútímaljósmyndun fyrir tilstilli tölvutækninnar. Fyrir utan þá áhugaverðu hugmynd um að blanda saman málverki og ljósmynd þá er hægt að segja að efni myndanna eða frásögn hafi ekki haft neitt sérstakt þema. Margar sýndu fólk eða staði, þá helst að þær væru teknar á réttum augnablikum, uppfullar af áhugaverðum smáatriðum. Lesa meira
 
New Iceland Youth Choir

Meðlimir barnakórsins eru allir af íslenskum ættum - 05.08.2008 Menning

Fimmtudaginn 7. ágúst heldur barnakór úr Vesturheimi The New Iceland Youth Choir tónleika í Nýheimum. Tónleikarnir hefjast klukkan 20. Kórinn var stofnaður 1999 og er um mart sérstakur hópur. Kórmeðlimir eiga ættir að rekja til Hornafjarðar, Skagafjarðar og Borgarfjarðar Eystri og nokkrir eru afkomendur Gunnars Pálssonar, en Páll var sonur Þórðar (Blinda) Pálssonar og Halldóru Högnadóttur, frá Horni. Lesa meira
 
Steinaferð 2008

Steinaferð í Laxárdal í Nesjum - 01.08.2008 Menning

Í þessari viku fór barnastarf Menningarmiðstöðvarinnar í Steinaferð í Laxárdal í Nesjum. Krakkarnir fundu allskyns steinategundir eins og t.d. Glerhalla, Onyx, Jaspis og allskonar aðra fallega steina. Einn steinn stóð þó sérstaklega upp úr en það var grænleitur Jaspis sem að ungur drengur hér í sveit fann. Eftir vel heppnaða steinaleit var svo borðað nesti og haldið heim á leið. Þetta var mikil ævintýraferð fyrir krakkana en bíllinn festist í gljúpum árfarvegi Laxárinnar og var fengin hjálp til að losa bílinn á meðan krakkarnir fylgdust með og skemmtu sér konunglega. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica