Menning
Leikhópurinn Lotta
Leikhópurinn Lotta
Leikhópurinn Lotta

29.07.2008

Galdrakarlinn í Oz á hóteltúninu

Leikhópurinn Lotta kemur til Hornafjarðar föstudaginn 1. ágúst og sýnir undir berum himni fjölskyldusýninguna Galdrakarlinn í Oz en leikhópurinn sýndi einmitt Dýrin í Hálsaskógi í fyrrasumar við miklar vinsældir.
Leikstjóri og höfundur leikgerðar er Ármann Guðmundsson og er hann jafnframt höfundur tónlistar og söngtexta ásamt þeim Baldri Ragnarssyni, Eggerti Hilmarssyni og Snæbirni Ragnarsyni en þeir eru allir meðlimir hljómsveitarinnar Ljótu hálfvitarnir.

Flestir þekkja söguna af ævintýralegu ferðalagi Kansasstúlkunnar Dórótheu og Tótó, hundinum hennar, til landsins Oz og hvernig hún kynnist heilalausu Fuglahræðunni, hjartalausa Pjáturkarlinum og huglausa Ljóninu og kemst í kast við vondu Vestannornina sem vill ná af Dórótheu silfurskónum sem henni eru gefnir. Spurning er bara hvort Galdrakarlinn ógurlegi í Oz getur hjálpað Dórótheu að komast aftur heim og vinum hennar að fá það sem þá svo sárlega vantar.

Með helstu hlutverk fara Rósa Björk Ásgeirsdóttir sem Dóróthea, Baldur Ragnarsson sem Fuglahræðan, Sigsteinn Sigurbergsson sem Pjáturkarlinn, Anna Bergljót Thorarensen sem Ljónið og hundurinn Bella sem Tótó.

Miðaverð er kr. 1.500 fyrir fullorðna og kr. 1.000 fyrir börn. Munið að klæða ykkur eftir veðri og takið endilega með ykkur myndavél og teppi til að sitja á

Sýninging hefst klukkan 18:00 og verður á túninu hjá Hótel Höfn. Frekari upplýsingar eru í síma 770-0403 og á www.leikhopurinnlotta.is



Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica