Ólafsmessa í Kálfafellsstaðarkirkju
Næstkomandi þriðjudag 29. júlí kl 14:00 verður hátíðarstund og tónleikar í Kálfafellsstaðarkirkju. Markmiðið með þessum viðburði er margþætt, bæði það að efla menningarlíf í dreifbýli yfir ferðamannatímann, en einnig að vekja athygli á kirkjum héraðsins sem menningarhúsum og áhugaverðum ferðamannastöðum. Einnig er verið að gera sögu héraðsins sýnilegri með því að rifja upp gamlar sögur og sagnir og halda þannig við þekkingu á alþýðufróðleik fyrri alda. Verkefnið er samstarfsverkefni Þórbergsseturs og Kálfafellstaðarkirkju styrkt af Menningarráði Austurlands.
Kálfafellstaður er merkur sögustaður í Suðursveit allt frá frumkristni á Íslandi. Kirkjan á Kálfafellsstað er Ólafskirkja, helguð Ólafi helga Noregskonungi. Hann lést í bardaga á Stiklastöðum í Noregi 29. júlí 1030 . Fyrirhugað er að tónleikahald verði árviss viðburður í Kálfafellsstaðarkirkju á þessum degi. Gömul þjóðsaga um völvuna, systur Ólafs helga sem bjó á Kálfafelli ásamt Kálfi bónda, hefur lifað í gegnum aldirnar og örnefni í umhverfinu minna á þessa merku sögu, svo sem Ólafsbrunnur, Völvuleiði, Kálfagróf o.fl.
Dagskrá Ólafsmessu er eftirfarandi:
14:00 Helgistund Séra Einar G. Jónsson sóknarprestur
14:30 Kirkja Ólafs helga, upplestur
14:45 Tónleikar - Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari og Richard Simm leika þekkt lög, íslensk og erlend
15:40 Heimsókn að Völvuleiði undir Hellaklettum, rifjuð upp gömul munnmælasaga um völvuna á Kálfafellsstað
systur Ólafs helga.
16:30 Kaffiveitingar í Þórbergssetri ? Opið á sýningar.
Það er kjörið tækifæri að koma við í Kálfafelsstaðarkirkju næstkomandi þriðjudag, taka gesti með sér og njóta. tónlistar, útiveru og fræðslu. Vonandi verða veðurguðirnir blíðir þennan dag því það er skemmtilegt að heimsækja Völvuleiðið undir Hellaklettum á góðviðrisdegi og rifja upp merkilegar sögur frá liðinni tíð.



