Menning

Bergþór Pálsson, Bragi Bergþórsson og Þóra Fríða Sæmundsdóttir

Nú andar suðrið... - 24.07.2008 Menning

Feðgarnir Bergþór Pálsson og Bragi Bergþórsson ásamt Þóru Fríðu Sæmundsdóttur, undirleikara flytja ljúflingslög Inga T. Lárussonar á tónleikum í Nýheimum nk. laugardag. Tónleikar þessir eru hluti af dagskrá Franskra daga sem haldnir eru á Fáskrúðsfirði þessa helgi. Bergþór er Hornfirðingum að góðu kunnur en hann hefur, ásamt mörgum góðum tónlistarmönnum, haldið hér tónleika í tengslum við Franska daga undanfarin nokkur ár. Á efnisskrá tónleikanna eru lög eftir Seyðfirðinginn Inga T. Lárusson (1892-1946). Ingi T. Lárusson er eitt af ástsælustu tónskáldum þjóðarinnar og hvert mannsbarn þekkir lög eins og "Það er svo margt", "Hríslan og lækurinn", og "Ég bið að heilsa". Ljóðræna og fegurð eru hans aðalsmerki og í lögum hans er tónn sem snertir streng í hverju brjósti. Lesa meira
 
Fjársjóðsferð

Fjársjóðsleit á Melatanga - 24.07.2008 Menning

Þessa vikuna fóru krakkarnir í barnastarfi menningarmiðstöðvarinnar í Fjársjóðsferð á Melatanga. Frábær mæting var í ferðina eða 29 krakkar. Haukur í Fjöruferðum og Óskar ferjuðu krakkana yfir á Melatanga og svo hófst geysispennandi leit að fjársjóðnum. Helmingurinn af honum fannst svo í stýrishúsinu á sandinum og í Gömlu tundurdufli, hinn helmingurinn fannst með málmleitartæki í rústunum af flugvallarhúsinu. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica