Hljómsveitirnar SLUGS og Minsk í Sindrabæ í kvöld
Í kvöld , mánudaginn 21. júlí, mun evrópska hljómsveitin 'SLUGS' spila á tónleikum í Sindrabæ, Höfn í Hornafirði. Þetta eru síðustu tónleikar þeirra í þessari ferð um austurlandið sem hófst á Eistnaflugi á Neskaupsstað. Þeir hafa fengið góða dóma, spila af hamslausri gleði, eins og um líf og dauða sé að tefla, eða eins og hefur verið orðað sem "sense of danger" eða lífshættulegir straumar. Með þeim verða strákarnir í hljómsveitinni Minsk sem slógu í gegn á Humarhátíð. Tónleikarnir byrja klukkan níu og verða eflaust mjög góðir. Það kostar ekkert inn og eru allir velkomnir.



