Menning
Sumargledin_MG_8130
Sumargledin_MG_8130
Sumargleðin

17.07.2008

Sumargleði Kimi Records í Pakkhúsinu um helgina

Sumargleðin er tónleikahringferð um landið með hljómsveitunum Benni Hemm Hemm, Borko, Morðingjarnir og Reykjavík! Lokatónleikar Sumargleðinnar á landsbyggðinni verða í Pakkhúsinu laugardagskvöldið 19. júlí og má þar búast við það verði pökkuð stemning. Miðaverð á hverja einu og einustu tónleika er ekki nema 1.000 kr. sem má teljast ansi sanngjarnt í kreppunni. Árni+1 mun sjá til þess að fólki leiðist ekki milli atriða með plötuþeytingi og svo er aldrei vita nema tónlistarmennirnir galdri ekki fram nýjar og spennandi hljómsveitir og tónlistaratriði.

Tónleikarnir hefjast kl. 20


Einnig eru meiri upplýsingar á www.kimirecords.net og www.myspace.com/kimirecords.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica