Byrjuðu á því að skoða Blóthús frá Landnámsöld
Barnastarf MMH
Á þriðjudaginn fór Menningamiðstöðin með krakkana í Barnastarfinu inn að Hólmi í Nesjum í fornleifarannsóknir. Þar tóku þeir Ármann og Bjarni fornleifafræðingar á móti okkur og fræddu okkur um fornleifarannsóknir og sögðu okkur hvernig það væri að vera fornleifafræðingur. Við byrjuðum á því að skoða Blóthús frá Landnámsöld, eða um 900 en þar voru heiðnar grafir sem að fannst kuml úr árið 1902. Einnig skoðuðum við uppgröft af öðrum húsum frá Landsnámsöld en þar var verið að grafa upp eldstæði meðal annars, ásamt því að við fengum að sjá muni sem fundust í uppgreftrinum. Við uppgröftinn komu í ljós gjóskulög sem að voru frá gosi í Öræfajökli árið 1362 og svo úr veiðivötnum árið 1477.
Krakkarnir fengu sýnishorn af gjóskulögunum til að taka með sér heim og sumir smökkuðu meira að segja á þeim. Eftir vel heppnaðar fornleifarannsóknir og nestispásu héldum við svo heim á leið.



