The Pitchfork Rebellion á Humarhöfninni á Humarhátíð
Djass bandið The Pitchfork Rebellion var stofnað í ársbyrjun 2007 og er starfrækt frá nágrenni Húsavíkur. Í bandinu eru þau Fanney Kristjánsdóttir söngkona og Héðinn Björnsson, þúsundþjalasmiður og kazzoleikari en stundum slást í för með þeim tónlestarmenn og konur úr ýmsum áttum. Þau spila aðallega notaleg gömul sígild djasslög og hafa hlotið fádæma lof hvar sem þau hafa komið við. Þau munu spila og syngja fyrir matargesti Humarhafnarinnar á föstudags- og laugardagskvöld.
Að auki ætla þau að taka lagið fyrir gesti og gangandi seinnipartinn báða dagana.



