Menning

Leikhópurinn Lotta

Galdrakarlinn í Oz á hóteltúninu - 29.07.2008 Menning

Leikhópurinn Lotta kemur til Hornafjarðar föstudaginn 1. ágúst og sýnir undir berum himni fjölskyldusýninguna Galdrakarlinn í Oz en leikhópurinn sýndi einmitt Dýrin í Hálsaskógi í fyrrasumar við miklar vinsældir. Leikstjóri og höfundur leikgerðar er Ármann Guðmundsson og er hann jafnframt höfundur tónlistar og söngtexta ásamt þeim Baldri Ragnarssyni, Eggerti Hilmarssyni og Snæbirni Ragnarsyni en þeir eru allir meðlimir hljómsveitarinnar Ljótu hálfvitarnir. Lesa meira
 
Tónleikar á Ólafsmessu

Tónleikar í Kálfafellsstaðarkirkju - 28.07.2008 Fréttir

Vakin er athygli á hátíðarstund og tónleikum í Kálfafellsstaðarkirkju þriðjudaginn 29. júlí klukkan 14:00. Rut Ingólfssdóttir fiðluleikari og Richard Simm píanóleikari koma í heimsókn og á efnisskránni eru þekkt lög, íslensk og erlend. Kálfafellsstaðarkirkja er mjög gott tónlistarhús og því eru sýslubúar og gestir hvattir til að mæta og njóta tónlistar, fræðslu og helgistundar í Suðursveit. Flutt verða m.a. lög eftir Pál Ísólfsson, Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Inga T Lárusson og Sigvalda Kaldalóns. Gönguferð að Völvuleiði undir Hellaklettum og heimsókn í Þórbergssetur verða síðan í lok athafnarinnar. Lesa meira
 
Kálfafellsstaðarkirkja

Ólafsmessa í Kálfafellsstaðarkirkju - 25.07.2008 Fréttir

Næstkomandi þriðjudag 29. júlí kl 14:00 verður hátíðarstund og tónleikar í Kálfafellsstaðarkirkju. Markmiðið með þessum viðburði er margþætt, bæði það að efla menningarlíf í dreifbýli yfir ferðamannatímann, en einnig að vekja athygli á kirkjum héraðsins sem menningarhúsum og áhugaverðum ferðamannastöðum. Einnig er verið að gera sögu héraðsins sýnilegri með því að rifja upp gamlar sögur og sagnir og halda þannig við þekkingu á alþýðufróðleik fyrri alda. Verkefnið er samstarfsverkefni Þórbergsseturs og Kálfafellstaðarkirkju styrkt af Menningarráði Austurlands. Lesa meira
 
Bergþór Pálsson, Bragi Bergþórsson og Þóra Fríða Sæmundsdóttir

Nú andar suðrið... - 24.07.2008 Menning

Feðgarnir Bergþór Pálsson og Bragi Bergþórsson ásamt Þóru Fríðu Sæmundsdóttur, undirleikara flytja ljúflingslög Inga T. Lárussonar á tónleikum í Nýheimum nk. laugardag. Tónleikar þessir eru hluti af dagskrá Franskra daga sem haldnir eru á Fáskrúðsfirði þessa helgi. Bergþór er Hornfirðingum að góðu kunnur en hann hefur, ásamt mörgum góðum tónlistarmönnum, haldið hér tónleika í tengslum við Franska daga undanfarin nokkur ár. Á efnisskrá tónleikanna eru lög eftir Seyðfirðinginn Inga T. Lárusson (1892-1946). Ingi T. Lárusson er eitt af ástsælustu tónskáldum þjóðarinnar og hvert mannsbarn þekkir lög eins og "Það er svo margt", "Hríslan og lækurinn", og "Ég bið að heilsa". Ljóðræna og fegurð eru hans aðalsmerki og í lögum hans er tónn sem snertir streng í hverju brjósti. Lesa meira
 
Fjársjóðsferð

Fjársjóðsleit á Melatanga - 24.07.2008 Menning

Þessa vikuna fóru krakkarnir í barnastarfi menningarmiðstöðvarinnar í Fjársjóðsferð á Melatanga. Frábær mæting var í ferðina eða 29 krakkar. Haukur í Fjöruferðum og Óskar ferjuðu krakkana yfir á Melatanga og svo hófst geysispennandi leit að fjársjóðnum. Helmingurinn af honum fannst svo í stýrishúsinu á sandinum og í Gömlu tundurdufli, hinn helmingurinn fannst með málmleitartæki í rústunum af flugvallarhúsinu. Lesa meira
 
SLUGS_

Hljómsveitirnar SLUGS og Minsk í Sindrabæ í kvöld - 21.07.2008 Menning

Í kvöld , mánudaginn 21. júlí, mun evrópska hljómsveitin 'SLUGS' spila á tónleikum í Sindrabæ, Höfn í Hornafirði. Þetta eru síðustu tónleikar þeirra í þessari ferð um austurlandið sem hófst á Eistnaflugi á Neskaupsstað. Þeir hafa fengið góða dóma, spila af hamslausri gleði, eins og um líf og dauða sé að tefla, eða eins og hefur verið orðað sem "sense of danger" eða lífshættulegir straumar. Með þeim verða strákarnir í hljómsveitinni Minsk sem slógu í gegn á Humarhátíð. Tónleikarnir byrja klukkan níu og verða eflaust mjög góðir. Það kostar ekkert inn og eru allir velkomnir. Lesa meira
 
Sumargledin_MG_8130

Sumargleði Kimi Records í Pakkhúsinu um helgina - 17.07.2008 Menning

Sumargleðin er tónleikahringferð um landið með hljómsveitunum Benni Hemm Hemm, Borko, Morðingjarnir og Reykjavík! Lokatónleikar Sumargleðinnar á landsbyggðinni verða í Pakkhúsinu laugardagskvöldið 19. júlí og má þar búast við það verði pökkuð stemning. Miðaverð á hverja einu og einustu tónleika er ekki nema 1.000 kr. sem má teljast ansi sanngjarnt í kreppunni. Árni+1 mun sjá til þess að fólki leiðist ekki milli atriða með plötuþeytingi og svo er aldrei vita nema tónlistarmennirnir galdri ekki fram nýjar og spennandi hljómsveitir og tónlistaratriði. Lesa meira
 
Lúruveiðar 2008

Lúruveiði með barnastarf Menningarmiðstöðvar - 16.07.2008 Menning

Í þessari viku fóru krakkarnir í barnastarfi Menningarmiðstöðvarinnar í Lúruveiði. Farið var á bátum austan við Ægisíðuna og veitt í net. Krakkarnir Hjálpuðu þeim Bjössa og Gísla Karli að draga inn netið og taka Lúruna úr því og það var rosa fjör að fá að taka þátt í því, enda nóg af Lúru sem kom í netin. Á leiðinni heim var tekin smá útúrdúr og fuglalífið skoðað ásamt því að skipstjórinn sá til þess að allir blotnuðu, sumir blotnuðu alveg í gegn. Lesa meira
 
Hólmur í Nesjum í fornleifarannsóknir

Byrjuðu á því að skoða Blóthús frá Landnámsöld - 10.07.2008 Menning

Á þriðjudaginn fór Menningamiðstöðin með krakkana í Barnastarfinu inn að Hólmi í Nesjum í fornleifarannsóknir. Þar tóku þeir Ármann og Bjarni fornleifafræðingar á móti okkur og fræddu okkur um fornleifarannsóknir og sögðu okkur hvernig það væri að vera fornleifafræðingur. Við byrjuðum á því að skoða Blóthús frá Landnámsöld, eða um 900 en þar voru heiðnar grafir sem að fannst kuml úr árið 1902. Einnig skoðuðum við uppgröft af öðrum húsum frá Landsnámsöld en þar var verið að grafa upp eldstæði meðal annars, ásamt því að við fengum að sjá muni sem fundust í uppgreftrinum. Við uppgröftinn komu í ljós gjóskulög sem að voru frá gosi í Öræfajökli árið 1362 og svo úr veiðivötnum árið 1477. Lesa meira
 
Hlynur Pálmason

Frábær sýning hjá Hlyni Pálmasyni - 04.07.2008 Menning

Hlynur Pálmason opnaði í gær sýningu sína "Sjónræn dagbók" Sýningin er fjölbreytt og myndirnar alveg meiriháttar sem sýnir að Hlynur er þarna á réttri leið hvað varðar nám og starf og verður gaman að fylgjast með honum í framtíðinni. Hornfirðingar og humarhátíðargestir eru hvattir til að koma við á Graðaloftinu og gefa sér góðan tíma til að skoða sýninguna. Aðeins smá ábending; gefið ykkur tíma til að skoða myndirnar á skjánum. Lesa meira
 
Pitchfork Rebellion

The Pitchfork Rebellion á Humarhöfninni á Humarhátíð - 03.07.2008 Menning

Djass bandið The Pitchfork Rebellion var stofnað í ársbyrjun 2007 og er starfrækt frá nágrenni Húsavíkur. Í bandinu eru þau Fanney Kristjánsdóttir söngkona og Héðinn Björnsson, þúsundþjalasmiður og kazzoleikari en stundum slást í för með þeim tónlestarmenn og konur úr ýmsum áttum. Þau spila aðallega notaleg gömul sígild djasslög og hafa hlotið fádæma lof hvar sem þau hafa komið við. Þau munu spila og syngja fyrir matargesti Humarhafnarinnar á föstudags- og laugardagskvöld. Lesa meira
 
Hallgrímur Ingólfsson

Hallgrímur með myndlistarsýningu á Humarhöfninni - 02.07.2008 Menning

Hallgrímur Ingólfsson opnar myndlistarsýningu í Humarhöfninni á föstudag. Hallgrímur sem er kennari við listnámsbraut VMA hefur teiknað og málað frá barnæsku. Hann er lærður innanhússarkitekt frá Skolen for boligindretning (Danmarks Designskole) í Kaupmannahöfn og nam eitt ár við Det Kongelige Danske Kunstakedemi í sömu borg og er með kennsluréttindi frá Háskólanum á Akureyri. Þetta er fjórða einkasýning Hallgríms sem hefur auk þess tekið þátt í nokkrum samsýningum. Myndefni Hallgríms er margbreytilegt, en þó má segja sjórinn sé honum hugleikinn og komi fram í flestum myndum hans. Lesa meira
 
Huldarós

Hulda Rós og Rökkurtríóið í Pakkhúsinu - 01.07.2008 Menning

Annað kvöld, miðvikudaginn 2. júlí verða tónleikar í Pakkhúsinu á Höfn í Hornafirði. Eru tónleikarnir haldnir í samstarfi við Menningarmiðstöð Hornafjarðar og má einnig segja að þetta sé fyrsti viðburður Humarhátíðar á Höfn sem fer fram næstu helgi. Á þessum tónleikum kemur fram hin tiltölulega nýja hljómsveit Hulda Rós og Rökkurtríóið. Hljómsveitin hefur nú þegar komið fram á tveimur tónlistarhátíðum á þessu ári, Norðurljósablús á Höfn og Hammondhátíð á Djúpavogi og fengið góða dóma. Hljómsveitina skipa Sigurður Guðnason á gítar, Bjartmar Ágústsson á kontrabassa og rafbassa, Eymundur Ragnarsson á trommur, Heiðar Sigurðsson á píanó og hammond ásamt Huldu Rós Sigurðardóttur sem syngur. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica