Óskað eftir sjálfboðaliðum
Að halda Humarhátíð krefst markviss undirbúnings og mikillar vinnu. Margar hendur koma að því að gera hverja Humarhátíð að veruleika og sjálfboðaliðar leggja sitt að mörkum til þess að hátíðin megi heppnast sem best. Mörg félagasamtök hafa komið að skipulagningu og undirbúningi Humarhátíðarinnar í gegnum árin. Nægir þar að nefna Kiwanisklúbbinn ÓS, Karlakórinn Jökul, Kvennakór Hornafjarðar, Björgunarfélag Hornafjarðar og knattspyrnudeild Sindra. Í ár er hátíðin í höndum knattspyrnudeildarinnar og björgunarfélagsins. Starfsmaður er framkvæmdastjóri Sindra, Valdemar Einarsson. Björgunarfélagið og knattspyrnudeildin reyna að sjálfsögðu eftir fremsta megni að manna þau störf sem þarf að manna á hátíðinni. En það er alltaf hægt að nýta fleira fólk á öllum aldursstigum t.a.m. í gæslu á dansleikjum og á hátíðarsvæðinu.
Humarhátiðin er orðin ómissandi liður í sumarstemningu okkar Hornfirðinga og þeirra gesta sem sækja okkur heim. En til þess að geta haldið þessu starfi gangandi þurfum á sjálfboðaliðum að halda og því fleiri því betra. Ef einhverjir hafa áhuga á því að létta undir með okkur með því að taka eins og eina vakt þá er þeim bent á að hafa samband við Valdemar Einarsson í síma 868-6865 eða senda tölvupóst á netfangið sindri@hfn.is .



