Menning
Listasmiðja 2008
Listasmiðja 2008
Listasmiðja 2008
Mynd 3 af 3
1 2 3

27.06.2008

List og líf á Humarhátíð

Það verður mikið um að vera á Humarhátíð og bætist stanslaust í dagskránna. Það er frábært að sjá allt þetta úrval og það að áhersla sé lögð á hornfirskar hljómsveitir er til eftirbreytni. Fjölbreyttar sýningar að tryggja að flestir finni eitthvað við sitt hæfi og um að gera að flakka á milli sýninga, sýna sig og sjá aðra um leið og við njótum þess sem allir þessir listamenn hafa fram að færa.
Í júní hefur verið starfandi listasamiðja fyrir börn á aldrinum 9- 16 ára og má búast við að þátttakendur í henni láti að sér kveða á Humarhátíð með leik og söng. Hafa Siggi Palli og Halldóra séð um hana og krakkarnir fjölmennt til þeirra. Verður spennandi að fylgjast með þeim en þegar nær dregur Humarhátíðinni fáum við betur að vita hvar þau verður að finna
Þá verður líka ljósmyndamaraþon og eru hátíðargestir hvattir til að leggja sitt af mörkum við að ljósmynda mannlífið á Humarhátíð. Ljósmyndamaraþonið verður auglýst nánar þegar nær dregur.
Í rústunum á Heppu, bakvið Miklagarð verður útimarkaður laugardaginn 5. júlí. Ætlunin er að slá upp bílskúrsmarkaði þar sem Hornfirðingar geta komið með gamla muni, gömul fótanuddtæki, ferðatöskur, tjöld, fatnað og hvað eina sem þeir finna í bílskúrum sínum, og selt gestum og gangandi. Þar verður einnig hægt að sjá þær hugmyndir sem uppi eru um framtíðarskipulag svæðisins.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica