Af Sólhól minninganna
Fimmtudaginn 3. júlí verður opnuð í Nýheimum sýningin "Af Sólhól minninganna". Sýning þessi er safn stuttra frásagna Borgþórs Arngrímssonar sem ólst upp á Sólhól (Bogaslóð 6) frá þriggja ára aldri. Borgþór, sem fæddur er 1950, hefur sett á blað minningabrot úr æsku sinni þar sem ýmsir íbúar í þorpinu og atburðir sem þar gerðust koma við sögu. Sonur Borgþórs Arngrímur, sem er menntaður myndlistarmaður, hefur gert teikningar sem fylgja hverri sögu, án þess þó endilega að tengjast beint söguefninu. Ennfremur fylgja sögunum ljósmyndir sem tengjast efninu. Sýningin verður opin á opnunartíma Bókasafnsins, alla virka daga 10-16 og um Humarhátíð 13-17.
Sama dag opnar sýning á verkum í eigu sveitarfélgsins eftir þá Höskuld Björnsson, Svavar Guðnason, Jón Þorleifsson og Bjarna Henriksson. Sýningin kallast "Hornfirskt landslag" og þar má sjá, eins og nafnið ber með sér, umhverfi Hornafjarðar með augum þessara brautryðjenda. Sýningin verður opin fram til mánaðarmóta júlí/ágúst og er opin daglega frá 13-17.



