Menning
Listasmiðja
listasmidja
Listasmiðja

16.06.2008

Listasmiðja fyrir 10 - 16 ára krakka

Listasmiðja fyrir krakka á aldrinum 10 - 16 ára (fædd 1992-1999) hefst mánudaginn 16. júní og lýkur á Humarhátíð 6. júlí. Skráning í smiðjuna fer fram í Sindrabæ mánudaginn 16. júní milli klukkan 15 og 19, krafist er greiðsli við skráningu. Verð kr. 7000 fyrir fyrsta barn en kr. 3000 fyrir hvert systkini eftir það.
Halldóra og Siggi Palli sjá um listasmiðjuna og lofa viðburðaríku sumri. Eitthvað verður í boði fyrir alla aldurshópa og markmiðið að virkja krakkana í leik og starfi. Listasmiðjan mun taka virkan þátt í Humarhátíð en hvort boðið verður uppá karnival, götuleikhús, söng, glens og gaman eða bara allt....kemur í ljós.

Verði er stillt í hóf og spara á í efniskostnaði, þess í stað verður farið ofan í kistla og geymslur hjá pabba og mömmu, eða afa og ömmu og leitað eftir fötum og dóti sem nýta má í starfinu. Smiðjunni verður svo slitið með lokahátíð hópsins sunnudaginn 6. júlí. Það er því skemmtilegt starf framundan í listasmiðjunni og allir krakkar 10-16 ára hvattir til að vera með.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica