Guðrún Ingólfsdóttir með málverkasýningu
Laugardaginn 14. júní opnar Guðrún Ingólfsdóttir málverkasýningu á Kaffihorninu. Þetta er önnur einkasýning hennar þar sem eru 33 akrýlverk og eitt málað með olíulitum, flest máluð á þessu ári. Myndefnið er sótt í ríki náttúrunnar og okkar nánasta umhverfi.
Guðrún var við listnám í Reykjavík síðastliðinn vetur og lokaverkefni hennar frá Myndlistaskólanum í Reykjavík er til sýnis í útibúi Landsbanka Íslands á Höfn þessa dagana og heitir verkið AÐ FARA OG KOMA.
Þess má geta að Guðrún opnaði nýlega heimasíðuna www.gingo.is.
Sýningin á Kaffihorninu verður opin fram eftir sumri og er sölusýning.



