Menning
Lúðrasveit Tónskóla A-Skaft.
Lúðrasveit Tónskóla A-Skaft.
Lúðrasveit Tónskóla A-Skaft.

09.06.2008

Lúðrar og list í Haukafelli

Fimmtudagskvöldið 12. júní mun Lúðrasveit Tónskóla A-Skaft. halda útitónleika í Haukafelli á Mýrum. Tónleikarnir eru samstarfsverkefni Skógræktarfélags Austur-Skaftfellinga og Lúðrasveitar Tónskóla A-Skaft. Lúðrasveitin undirbýr sig nú af kappi fyrir þátttöku í lúðrasveitarmóti í Gautaborg í Svíþjóð og eru tónleikarnir liður í þjálfun sveitarinnar fyrir það. Kvöldrúntur í Haukafell og lúðrablástur í sérstöku umhverfi er eitthvað sem allir ættu að upplifa og njóta.

Tónleikarnir hefjast kl.20.00 og er aðgangur ókeypis. Rétt er að taka með sér hlý föt og teppi til að sitja á.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica