Menning
Post-it poster
Post-it poster
Post-it poster
Mynd 1 af 6
1 2 3 4 5 6

30.05.2008

Stuttmyndin Post-it lenti í þriðja sæti á Stuttmyndahátið Reykjavíkur

Stuttmyndahátið Reykjavíkur var haldin þann 29. maí s.l. Stuttmyndin Post-it eftir Hlyn Pálmason, sem tekin var hér á Höfn s.l. sumar lenti í 3. sæti, en myndin verður sýnd í sjónvarpinu á næstunni. Leikarar í myndinni eru allir heimamenn: Hreinn Eiríksson, Kristín Gísladóttir, Gunnar Örn Reynisson og Maríanna Jónsdóttir.
Þetta er frábær árangur hjá Hlyni en hann stundaði nám í EFC (Europian film collage) í Ebeltoft í eitt ár eftir stúdentspróf. Seinna var hann í ljósmyndanámi í Köbenhavn Tekniske skole, með áherslu á filmur og myrkraherbergið. Að sögn Hlyns er hann þó ekki að stefna að því að verða ljósmyndari eingöngu en hafði mikinn áhuga á þessu, eins og sést á myndverkum hans. Stefnan í framtíðinni er tekin á kvikmyndaháskóla og megum við vænta stórra afreka frá honum í framtíðinni. Verðlaunasætinu fylgdu lítil peningaverðlaun sem að sögn Hlyns nýtast vel við framleiðslu næstu myndar sem verður tekin upp í júlí n.k. hér á Höfn og í nágrenni. Nýja myndin mun heita Jóel og hún verður u.þ.b. 15 mín. löng. Hægt verður að fylgjast með á vefsíðunum hpalmason.com eða hlynurp.blogspot.com. Hlynur er nú fluttur heim frá Danmörku í bili, ásamt unnustu sinni Hildi Ómarsdóttur, en þau eiga von á barni í ágúst.
Þess má geta að Hlynur verður með ljósmynda og málverkasýningu á Graðaloftinu á Humarhátíð, eins og í fyrra. Þar verða sýndar analog ljósmyndir, digital ljósmyndir, olíu málverk, mixed media verk, vatnslitamyndir og einnig video verk sem verður sýnt á klst fresti. Sýningin heitir Sjónræn dagbók og verður frá fimmtudegi til sunnudags. Hornafjarðarbær og Menningarsjóður Austurlands hafa stutt dyggilega við bakið á Hlyni og eins vill Hlynur koma á framfæri þökkum til allra fyrir hjálpina og stuðninginn sem er mjög mikilvægur.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica