Menning
Brúðuleikhús
Brúðuleikhús
Brúðuleikhús

21.05.2008

Brúðuleikhús, tónlist og sjónlist

Nemendum í 1.-7. bekk Grunnskóla Hornafjarðar er boðið á sýninguna Smaragðsdýpið mikla sem sýnt verður í Mánagarði föstudaginn 23. maí kl. 09.00. Sýningin er á vegum Listahátíðar, Skólatónleika á Íslandi, Listvinasjóðs Hornafjarðar og Skólaskrifstofa Hornafjarðar.
Hið alþjóðlega Hypno leikhús frá Berlín býður upp á sérstaka blöndu af tónlist, brúðuleik og sjónlist í sýningunni Smaragðsdýpið mikla, eða Um Marvintýri Purbijan Ranjan Biswas og gríðarlega forvitnisáráttu hans. Áhorfendur ferðast með hinni ungu sjávarskjaldböku Purbijan í leit hans að svari við spurningunni um hvað leynist á botni hafsins. Á leið sinni kynnist hann mörgum einkennilegum og áhugaverðum dýrum og er fylgt eftir af tígrishákarlinum dularfulla Sigurkarli Margleypi hinum þriðja. Eftir því sem við köfum dýpra verður hafið myrkara og verurnar yfirnáttúrulegri. Við færumst sífellt nær svarinu við spurningunni: hvað leynist niðri í dýpstu, svörtustu hlutum Indlandshafsins "Viljum við virkilega vita svarið" Leiksýningin skartar sjómannatónlist og lögum frá öllum heimshornum í einstökum búningi.
Hypno leikhúsið er hópur listamanna sem hafa sameinast í áhuga sínum á sögum og tónlist fyrir börn. Þessi alþjóðlegi hópur er skipaður fjórum tónlistarmönnum og tveimur brúðulistamönnum/sjónlistamönnum frá fimm löndum. Smaragðsdýpið mikla er þriðja alþjóðlega sýning hópsins. Hinar fyrri, Tónlist frá tunglinu og Snædrotting H.C. Andersens hafa verið sýndar fyrir þúsundir barna um heim allan.


Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica