Menning
Steintryggur á tónleikum
Steintryggur á tónleikum
Steintryggur á tónleikum
Mynd 4 af 4
1 2 3 4

08.05.2008

Hljómsveitin Steintryggur í Pakkhúsinu

Hljómsveitin Steintryggur heldur tónleika í Pakkhúsinu miðvikud. 14. maí kl. 21. Verkefnið Steintryggur er stofnað árið 2002 af Steingrími Guðmundssyni og Sigtryggi Baldursyni og er fyrirbrigði sem er ekki öllum kunnugt en framleiðir sérstaka og óvenjulega tónlist sem byggir í grunninn á trommupælingum þeirra Sigtryggs og Steingríms í bland við þjóðleg hljóðfæri og söng héðan og þaðan úr heiminum. Þeir vinna gjarnan með ýmsum gestaspilurum að tónlist sinni og hafa sérstakt yndi af því að blanda saman hinum ýmsustu áhrifum víðsvegar að úr heiminum.
Árið 2003 kom út geisladiskurinn "Dialog" með dúettinum Steintrygg sem fékk afar góða dóma í íslenskum fjölmiðlum. Diskurinn "Trappa" er nýkomin út og var hann unninn á fjögurra ára tímabili og tekinn upp í ýmsum löndum, eru gestaleikarar margir og víða að. Fór eftirvinnsla fram með Ben Frost frá Ástraliu bæði í Wales og í Breiðholti.
Hyggjast Steintryggsmenn nú leggja upp í hringferð um landið. Þeir leika á trommusett og indverskar Tabla trommur og á tónleikum hafa þeir sér til meðreiðar þá Ben Frost sem sér um tölvur og hljóð og Kippa Kaninus sem leikur á kjálkahörpur, syngur og sér um myndbönd, en tónleikarnir hafa viðeigandi myndskreytingar.
Lofað er hávaðasamri og heilbrigðri skemmtan.

Um Steintryggsmenn:

Sigtryggur Baldursson var trommuleikari í Þeyr, KUKL og Sykurmolunum og hann er stofnandi Bogomil Font og Milljónamæringanna. Var hann búsettur erlendis frá 1993 til 2003 og hefur starfað með mikið af tónlistarmönnum erlendis, m.a. Emiliönu Torrini, Les Negresses Vertes og Howie B. 1998 gaf hann út geisladiskinn "dip-Hi Camp meets LoFi" með Jóhanni Jóhannssyni diskinn. Hann er áberandi í íslensku tónlistarlífi, sér um músíktilraunir, leikur með ýmsum íslenskum tónlistarmönnum, er einn af kvartettinum Perculator, setti upp sameiginlega tónleika 15. apríl sl. með tíbetsku sönkonunni Soname Yangchen, samdi verk fyrir lok vetrarhátíðar í Perlunni sem leikið er á endurvarpsparabólur! og fleira og fleira.
Einnig hefur hann gert tónlist fyrir kvikmyndir og auglýsingar, og ekki síst þarf að minnast á ógleymanlega tónleika í Stafafellsfjöllum 2004.

Steingrímur Guðmundsson stundaði nám í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar en flutti til Svíþjóðar 1976 til að iðka trommunám hjá Pétri Östlund. Í Svíþjóðst starfaði Steingrímur með ýmsum hljómsveitum meðal annars með KoKo YoYo Band og tónlistar leikhúsinu Fria Teatern. 1981 flutti Steingrímur til Ameríku og gerðist lærisveinn í tablatrommuleik hjá indverska meistaranum Swapan Chauduri í Ali Akbar Kahn í tónlistarskóla hans í San Fransisco. 1984 stundaði Steingrímur nám í Creative Music Studio í New York hjá Þýska tónlistarmanninum Karl Berger. Eftir að Steingrímur kom til íslands hefur hann leikið með fjölmörgum tónlistarmönnum, innlendum sem erlendum, hérlendis sem erlendis, má þar nefna hljómsveitinna Súld, Milljónamæringana, Incredible String Band og Bardukha.

myspace.com/steintryggur

Hér til hliðsjónar er myndskeið sem varpa ljósi á fyrirbrigðið.

og nýlegar myndir frá tónleikum í Belgiu 30 april.



Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica