Menning

Post-it poster

Stuttmyndin Post-it lenti í þriðja sæti á Stuttmyndahátið Reykjavíkur - 30.05.2008 Menning

Stuttmyndahátið Reykjavíkur var haldin þann 29. maí s.l. Stuttmyndin Post-it eftir Hlyn Pálmason, sem tekin var hér á Höfn s.l. sumar lenti í 3. sæti, en myndin verður sýnd í sjónvarpinu á næstunni. Leikarar í myndinni eru allir heimamenn: Hreinn Eiríksson, Kristín Gísladóttir, Gunnar Örn Reynisson og Maríanna Jónsdóttir. Þetta er frábær árangur hjá Hlyni en hann stundaði nám í EFC (Europian film collage) í Ebeltoft í eitt ár eftir stúdentspróf. Seinna var hann í ljósmyndanámi í Köbenhavn Tekniske skole, með áherslu á filmur og myrkraherbergið. Að sögn Hlyns er hann þó ekki að stefna að því að verða ljósmyndari eingöngu en hafði mikinn áhuga á þessu, eins og sést á myndverkum hans. Stefnan í framtíðinni er tekin á kvikmyndaháskóla og megum við vænta stórra afreka frá honum í framtíðinni. Verðlaunasætinu fylgdu lítil peningaverðlaun sem að sögn Hlyns nýtast vel við framleiðslu næstu myndar sem verður tekin upp í júlí n.k. hér á Höfn og í nágrenni. Nýja myndin mun heita Jóel og hún verður u.þ.b. 15 mín. löng. Hægt verður að fylgjast með á vefsíðunum hpalmason.com eða hlynurp.blogspot.com. Hlynur er nú fluttur heim frá Danmörku í bili, ásamt unnustu sinni Hildi Ómarsdóttur, en þau eiga von á barni í ágúst. Lesa meira
 
Brúðuleikhús

Brúðuleikhús, tónlist og sjónlist - 21.05.2008 Menning

Nemendum í 1.-7. bekk Grunnskóla Hornafjarðar er boðið á sýninguna Smaragðsdýpið mikla sem sýnt verður í Mánagarði föstudaginn 23. maí kl. 09.00. Sýningin er á vegum Listahátíðar, Skólatónleika á Íslandi, Listvinasjóðs Hornafjarðar og Skólaskrifstofa Hornafjarðar. Hið alþjóðlega Hypno leikhús frá Berlín býður upp á sérstaka blöndu af tónlist, brúðuleik og sjónlist í sýningunni Smaragðsdýpið mikla, eða Um Marvintýri Purbijan Ranjan Biswas og gríðarlega forvitnisáráttu hans. Áhorfendur ferðast með hinni ungu sjávarskjaldböku Purbijan í leit hans að svari við spurningunni um hvað leynist á botni hafsins. Á leið sinni kynnist hann mörgum einkennilegum og áhugaverðum dýrum og er fylgt eftir af tígrishákarlinum dularfulla Sigurkarli Margleypi hinum þriðja. Eftir því sem við köfum dýpra verður hafið myrkara og verurnar yfirnáttúrulegri. Við færumst sífellt nær svarinu við spurningunni: hvað leynist niðri í dýpstu, svörtustu hlutum Indlandshafsins "Viljum við virkilega vita svarið" Leiksýningin skartar sjómannatónlist og lögum frá öllum heimshornum í einstökum búningi. Lesa meira
 
Up close

Hljómsveitin Steintryggur í Pakkhúsinu - 08.05.2008 Menning

Hljómsveitin Steintryggur heldur tónleika í Pakkhúsinu miðvikud. 14. maí kl. 21. Verkefnið Steintryggur er stofnað árið 2002 af Steingrími Guðmundssyni og Sigtryggi Baldursyni og er fyrirbrigði sem er ekki öllum kunnugt en framleiðir sérstaka og óvenjulega tónlist sem byggir í grunninn á trommupælingum þeirra Sigtryggs og Steingríms í bland við þjóðleg hljóðfæri og söng héðan og þaðan úr heiminum. Þeir vinna gjarnan með ýmsum gestaspilurum að tónlist sinni og hafa sérstakt yndi af því að blanda saman hinum ýmsustu áhrifum víðsvegar að úr heiminum. Árið 2003 kom út geisladiskurinn “Dialog” með dúettinum Steintrygg sem fékk afar góða dóma í íslenskum fjölmiðlum. Diskurinn “Trappa” er nýkomin út og var hann unninn á fjögurra ára tímabili og tekinn upp í ýmsum löndum, eru gestaleikarar margir og víða að. Fór eftirvinnsla fram með Ben Frost frá Ástraliu bæði í Wales og í Breiðholti. Hyggjast Steintryggsmenn nú leggja upp í hringferð um landið. Þeir leika á trommusett og indverskar Tabla trommur og á tónleikum hafa þeir sér til meðreiðar þá Ben Frost sem sér um tölvur og hljóð og Kippa Kaninus sem leikur á kjálkahörpur, syngur og sér um myndbönd, en tónleikarnir hafa viðeigandi myndskreytingar. Lofað er hávaðasamri og heilbrigðri skemmtan. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica