Menning
Þórbergssetur
Þórbergssetur
Prestastóll, stakstæður steinn undir hlíðum Steinafjalls (Mynd Þorbjörg Arnórsdóttir)

22.04.2008

Sagnalist, - kynning í Ekrunni

Miðvikudaginn 23. apríl verður kynning á verkefninu Sagnalist í félagssaðstöðu eldri borgara í Ekrunni á Höfn. Sagnalist er samstarfsverkefni Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri og Þórbergsseturs á Hala í Suðursveit og er stutt af Menningarráði Austurlands. Með verkefninu er leitað eftir samstarfi við eldra fólk um frásagnir eða ritun minninga frá liðinni tíð, ljóðagerð, myndgerð eða listsköpun í tengslum við ákveðið þema.
Dagskráin hefst klukkan 16:00. Byrjað verður á að kynna Þórbergssetur og Skriðuklaustur og starfsemina þar með myndasýningu, síðan verður lesið úr verkum Þórbergs og Gunnars Gunnarssonar og að lokum verður verkefnið Sagnalist kynnt. Að þessu sinni er óskað eftir að fólk rifji upp og skrái endurminningar frá fermingu sinni.Efniviður í ritunarverkefninu gæti tengst fjölmörgum þáttum í menningar- og atvinnusögu þjóðarinnar og haft gildi fyrir komandi kynslóðir til að leita heimilda um líf og starf fólks á tilteknu æviskeiði.Skilafrestur er til 1. október næstkomandi.

Gaman væri að sjá sem flesta eldri borgara í Ekrunni þennan dag en dagskráin stendur í u.þ.b. eina klukkustund og er skemmtileg á að hlýða.
Nú þegar hafa fulltrúar Þórbergsseturs og Skriðuklaustur heimsótt félög eldri borgara á nokkrum stöðum á Austurlandi til að kynna verkefnið og er því alls staðar vel tekið.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica