Ferðaminjar
Málþing um handverk, hönnun, mat og minjagripi.
Dagana 17. og 18. apríl n.k. verður málþing í Nýheimum á Höfn í Hornafirði um handverk, hönnun, mat og minjagripi.
Málþingið er á vegum Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar en Menningarmiðstöðin er aðili að Menningarráði Austurlands og gegnir hlutverki miðstöðvar bókmennta og handverks á Austurlandi
Tilgangur málþingsins er m.a. að efla handverk og hönnun á Austurlandi og draga fram þau sérkenni sem þar er að finna í mat og minjum. Markmið MMH er að renna styrkum stoðum undir framleiðslu og sölu minjagripa, skapa störf og starfsvettvang fyrir handverksfólk og hönnuði, og skapa þeim aðilum sem þegar vinna við handverk, matarminjar og hönnun, vettvang þar sem sýningar og námskeið verða mótuð um leið og nýsköpun og nýliðun innan greinarinnar verður efld.
Samstarfsaðilar eru auk Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar, Þekkingarnet Austurlands, Menningarráð Austurlands, Markaðsstofa Austurlands, Handverksfólk á Austurlandi og Frumkvöðlasetur Austurlands.
Málþingið er klasasamstarf þeirra aðila sem koma að verkefninu. Ferðaminjar er útgangspunktur málþingsins hvort sem um er að ræða handverk eða matarminjar og er það von Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar að klasasamstarfið eigi eftir að ná yfir fjölbreytta framleiðslu þar sem leitast er við að skapa afurðir tengdar náttúru og mannlífi svæðisins. Klasasamstarf er forsenda þess að verkefnið beri árangur og að þeir sem að máli koma vinni saman að þróun og uppbyggingu innan geirans.
Í vinnuhópum verður eftirfarandi til umræðu:
Samvinna handverksfólks á Austurlandi
stjórnandi Signý Ormarsdóttir - Menningarráð Auturlands
Sýningar
stjórnandi Sunneva Hafsteinsdóttir - Handverk og hönnun
Námskeiðahald
stjórnandi Stefanía Kristinsdóttir - Þekkingarnet Austurlands
Markaðs og kynningarstarf
stjórnandi Katla Steinsson - Markaðsstofa Austurlands
Fyrirlesarar verða:
Signý Ormarsdóttir, formaður Menningarráðs Austurlands
Sunneva Hafsteinsdóttir, framkv.stj. Handverks og Hönnunar
Ágústa Arnardóttir, hönnuður
Ari Þ. Þorsteinsson verkefnisstjóri Nýsköpunarmiðst.Ísl. á Hornafirði
Rósa Björk Halldórsdóttir, framkv. stj. Í ríki Vatnajökuls ehf.
Málþingið er öllum opið. Þátttökugjald er kr. 10.000.- Innifalið í þátttökugjaldi er kvöldverður, hádegisverður, kaffi og fundargögn.
Skráning er á: gunna@hornafjordur.is fyrir 15. apríl n.k.
Tilboð og flugi og gistingu:



