Menning

Þórbergssetur

Sagnalist, - kynning í Ekrunni - 22.04.2008 Menning

Miðvikudaginn 23. apríl verður kynning á verkefninu Sagnalist í félagssaðstöðu eldri borgara í Ekrunni á Höfn. Sagnalist er samstarfsverkefni Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri og Þórbergsseturs á Hala í Suðursveit og er stutt af Menningarráði Austurlands. Með verkefninu er leitað eftir samstarfi við eldra fólk um frásagnir eða ritun minninga frá liðinni tíð, ljóðagerð, myndgerð eða listsköpun í tengslum við ákveðið þema. Dagskráin hefst klukkan 16:00. Byrjað verður á að kynna Þórbergssetur og Skriðuklaustur og starfsemina þar með myndasýningu, síðan verður lesið úr verkum Þórbergs og Gunnars Gunnarssonar og að lokum verður verkefnið Sagnalist kynnt. Að þessu sinni er óskað eftir að fólk rifji upp og skrái endurminningar frá fermingu sinni.Efniviður í ritunarverkefninu gæti tengst fjölmörgum þáttum í menningar- og atvinnusögu þjóðarinnar og haft gildi fyrir komandi kynslóðir til að leita heimilda um líf og starf fólks á tilteknu æviskeiði.Skilafrestur er til 1. október næstkomandi. Lesa meira
 
Karlakórinn gömul mynd

Vortónleikar Karlakórsins Jökuls - 21.04.2008 Menning

Karlakórinn Jökull heldur sína árlegu vortónleika á sumardaginn fyrsta næstkomandi, sungin verða þekkt karlakórslög í gömlum og nýjum útsetningum. Á þessu ári heldur kórinn upp á 35 ára afmæli sitt. Á bændafundi árið 1972 var ákveðið að stofna karlakór með þátttöku manna úr sem flestum hreppum Austur-Skaftafellssýslu. Æfingar hófust 4. janúar 1973 og hefur Karlakórinn Jökull starfað óslitið síðan. Sigjón Bjarnason frá Brekkubæ var fyrsti stjórnandi kórsins. Hann hélt um tónsprotann í tuttugu ár, eða til ársins 1992. Þá tók núverandi kórstjóri, Jóhann Morávek við stjórn karlakórsins Jökuls. Guðlaug Hestnes hefur gegnt starfi undirleikara kórsins frá árinu 1975 eða um 33 ára skeið. Karlakórinn Jökull hefur haldið tónleika víða um land, á Norðurlöndunum og á Ítalíu. Kórinn er einn af stofnendum Kötlu, Sambands sunnlenskra karlakóra og hefur tekið þátt í öllum mótum þess. Karlakórinn Jökull hefur komið sex sinnum fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands og var raunar fyrsti áhugamannakórinn sem söng með hljómsveitinni. Kórinn hefur gefið út þrjá geisladiska, “Í jöklanna skjóli”, “Það kom söngfugl að sunnan” og nú síðast jóladiskinn "Hvít er borg og bær". Lesa meira
 
Samkórinn syngur á Strikinu í Kaupmannahöfn

Vortónleikar Samkórs Hornafjarðar - 17.04.2008 Menning

Vortónleikar Samkórsins eru í dag 17. apríl í Hafnarkirkju. Samkórinn er blandaður kór sem syngur við allar kirkjulegar athafnir allt árið um kring og eru þær margar þegar allt er talið. Efnisskráin í kvöld er fjölbreytt,afrískir og suðuramerískir söngvar,negrasálmar og margt fleira. Stjórnandinn er Kristín Jóhannesdóttir organisti og eru kórfélagar 30 talsins.Kórfólkið reynir að fara í söngferð annað hvert ár og aflar fjár til þess með tónleikum í kirkjunni,skemmtikvöldum í pakkhúsinu með söng og kræsingum,kaffisölu í slysavarnahúsinu laugardag fyrir sjómannadag og hlutaveltuí Miðbæ í desember. Lesa meira
 
Söngfélag Skaftfellinga

Lokaæfingar verða í sjoppum á leiðinni og í rútunni - 17.04.2008 Menning

Söngfélag Skaftfellinga leggur nú upp í sína árlegu vorferð föstudaginn 18. apríl, sem að þessu sinni er heitið til Hornafjarðar. Lokaæfingar verða í sjoppum á leiðinni og í rútunni ef þurfa þykir. Söngfélagar hafa haft það fyrir sið að líta inn á hjúkrunarheimili sem á vegi verða á ferðalögum sínum. Fyrst verður sungið fyrir vistmenn á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu á Kirkjubæjarklaustri síðdegis á föstudag. Eftir súpuspón hjá Kalla á Hótel Klaustri verður haldið áfram í Hótel Skaftafell þar sem gist verður í tvær nætur. Fyrirsjáanlegt er að taka þurfi aukaæfingar fram eftir kvöldi á föstudag, en upp skal þó rísa árla á laugardag og búast til ferðar austur á Höfn. Lesa meira
 

Ferðaminjar - 04.04.2008 Menning

Dagana 17. og 18. apríl n.k. verður málþing í Nýheimum á Höfn í Hornafirði um handverk, hönnun, mat og minjagripi. Málþingið er á vegum Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar en Menningarmiðstöðin er aðili að Menningarráði Austurlands og gegnir hlutverki miðstöðvar bókmennta og handverks á Austurlandi Tilgangur málþingsins er m.a. að efla handverk og hönnun á Austurlandi og draga fram þau sérkenni sem þar er að finna í mat og minjum. Markmið MMH er að renna styrkum stoðum undir framleiðslu og sölu minjagripa, skapa störf og starfsvettvang fyrir handverksfólk og hönnuði, og skapa þeim aðilum sem þegar vinna við handverk, matarminjar og hönnun, vettvang þar sem sýningar og námskeið verða mótuð um leið og nýsköpun og nýliðun innan greinarinnar verður efld. Lesa meira
 
Þórbergssetur

Bridgehátíð og hrossakjötsveisla í Þórbergssetri - 01.04.2008 Menning

Hin árlega bridgehátíð og hrossakjötsveisla verður haldin í Þórbergssetri 5. og 6. apríl næstkomandi. Áhugafólk um bridge og hrossakjötsát er boðið velkomið. Torfi Steinþórsson á Hala var mikill félagsmálafrömuður og áhugamaður um spilamennsku og gekkst hann fyrir bridgekeppni og hrossakjötsveislum í Suðursveit á árum áður. Afkomendur hans hafa tekið að sér að halda merkinu á loftinu og halda við hefðinni. Hér er fyrst og fremst um áhugamannamót að ræða þar sem helgin verður tekin í eina allsherjarskemmtun yfir spilum með áti inn á milli. Byrjað verður að spila og keppa í tvímenningi kl 17:00 á laugardeginum og spilað fram eftir kvöldi með tilheyrandi áthléum, en síðan byrjað klukkan 11 á sunnudeginum í sveitakeppni. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica