Menning
Rás 2 og Monitor rokka hringinn
rokka_hringinn
Rás 2 og Monitor rokka hringinn

30.03.2008

Dr. Spock, Sign og Benny Crespo's gang á ferð um landið

Guitar Hero III keppnir í framhaldsskólunum

Þann 3. apríl munu þrjár af vinsælustu rokkhljómsveitum Íslands í dag halda tónleika hér á Höfn, á vegum Rásar 2 og tímaritsins Monitor. Þetta er þriðja árið í röð sem Rás 2 stendur fyrir tónleikaferð um landið en í ár sameinast kraftar Rásar 2 og Monitor og úr verður stærsta tónleikaferðin til þessa. Helsti tilgangur ferðarinnar er að gefa tónlistaráhugafólki á landsbyggðinni tækifæri til að sjá og heyra fremsta tónlistarfólk landsins af yngri kynslóðinni í heimabyggð og fyrir lítið fé en Dr. Spock, Benny Crespos Gang og Sign ætla að rokka á Selfossi, Vestmannaeyjum, Höfn í Hornafirði, Eskifirði, Akureyri, Reykjanesbæ og í Reykjavík.

Rás 2 og Monitor munu fylgjast vel með því sem fram fer og kemur uppá meðan á ferðinni stendur. Rás 2 heyrir reglulega í hljómsveitarmeðlimum ásamt því að leika lög þeirra og Monitor mun birta Vídeóblogg eftir hvert kvöld á vefsíðu sinni Monitor.is, ásamt því að fjalla ítarlega um alla tónleikana.
Tónleikarnir verða í Sindrabæ fimmtudaginn 3. apríl og opnar húsið kl. 20

KEPPNI Í GUITAR HERO III
Komið verður við í framhaldsskólum sveitarfélaganna á tónleikadögum þar sem sett verður upp keppni í Guitar Hero III tölvuleiknum á PlayStation 3, en leikurinn hefur notið gríðarlegra vinsælda á Íslandi undanfarin ár og dæmi eru um að fjölmargir ungir aðdáendur leiksins hafi smitast svo rækilega af rokkbakteríunni að ekki hafi verið aftur snúið, þar sem næsta skref hefur verið alvöru gítar og innritun í tónlistarskóla.


Hljómsveitin Dr. Spock hefur átt góðu gengi að fagna eftir frábæra frammistöðu í Söngvakeppni Sjónvarpsins þar sem hljómsveitarmeðlimir fluttu lag Dr. Gunna, Hvar ertu nú? Sveitin vakti mikla athygli fyrir skemmtilega og kröftuga sviðsframkomu en það eru ein 15 ár síðan bandið var stofnað og því ljóst að hér fer ein af reyndari rokksveitum Íslands í dag. Gulir gúmmíhanskar verða örugglega með í för og það er hægt að lofa því að þar sem Dr. Spock kemur við er von á brjáluðu partýi.
www.myspace.com/doctorspock

Benny Crespo?s Gang er án efa ein áhugaverðasta hljómsveit landsins um þessar mundir. Fyrsta plata sveitarinnar kom út undir lok síðasta árs en eftir henna hafði verið beðið með mikilli eftirvæntingu í rokkheimum hér á landi. Benny Crespo?s Gang er rómað tónleikaband og ?gítarkennd, hljóðgerfluð, popp, metal kássa? er setning sem kann að koma upp í hugann þegar tónlist sveitarinnar ber á góma. Magnús, Lovísa (Lay Low), Helgi og Bassi skipa eina af björtustu vonum íslenska rokksins um þessar mundir en skemmst er að minnast þess að Lay Low plokkaði hringinn með Rás 2 í fyrra ásamt Pétri Ben og Ólöfu Arnalds.
www.myspace.com/bennycresposgang

Sign. Sjálfir lýsa þeir tónlist sinni sem melódísku töffararokki af guðs náð með öllu tilheyrandi. Nýjasta plata sveitarinar "The Hope", sem kom út fyrir síðustu jól, fellur algjörlega í þann jarðveg og í plötudómi tímaritsins Monitor skrifaði gagnrýnandi ?...að mínu mati fyrsta rokkplatan sem stendur jafnfætis því besta sem gerist annarsstaðar í heiminum ...? (4.tbl. des 07). Sign hafa verið kallaðir villtustu rokkarar landsins, með bræðurna Ragnar Zolberg og Egill Rafnsson í fararbroddi, en Arnar Grétarsson skiptir hetjusólóunum bróðurlega með Zolberg, auk þess að hafa verið valinn rokkari landsins hjá DV eigi alls fyrir löngu. Hljómsveitin Sign er líklega eitt duglegasta tónleikaband Íslands og hafa piltarnir m.a. haldið yfir 80 tónleika erlendis og enn fleiri á Íslandi á síðustu tveimur árum.
www.sign.is
www.myspace.com/sign

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica