Leynigestur í Sögustundinni á bókasafninu
Krakkarnir sem komu í sögustundina á bókasafninu í Nýheimum í dag fengu óvæntan og spennandi leynigest í heimsókn en það var hesturinn Erpur. Bryndís Hólmarsdóttir sem sér um sögustundina ákvað að koma krökkunum á óvart og það tókst virkilega vel og þeim fannst þetta afskaplega spennandi gestur þó sum væru hálf smeyk í fyrstu. Hræðslan hvarf þegar þau fengu að gefa Erp góðgæti úr lófa sínum og svo að koma á bak. Bryndís sagði krökkunum að Erpur væri að verða 25 ára og litföróttur á litinn sem er þannig að núna er hann brúnn á litinn en þegar kemur fram á vorið breytir hann um lit og verður steingrár á skrokkinn, síðan þegar kemur fram á sumarið byrjar hann að dökkna og fær aftur brúna litinn fyrir veturinn.
Sögustund er fyrir litlu börnin einu sinni í viku og segir Bryndís dálítið mismunandi hvað margir mæta, algengt að þau séu svona 7 til 9 það fari eftir því hvað foreldrarnir séu dugleg að koma með þau. Hún segir að flest börnin fylgist vel með því sem lesið er fyrir þau og eftir áramótin var hún með þjóðsögu-og tröllaþema. Það var virkilega skemmtilegt hvað þær sögur gengu vel í krakkana miklu betur en Einar Áskell og svoleiðis sögur. Mér finnst að sem flestir ættu að gefa börnum sínum kost á að sækja sögustundirnar og um leið kynnast þau bókasafninu og hvað það hefur uppá að bjóða og læra að nota það. Von er á fleiri góðum leynigestum í heimsókn í sögustundirnar.



