Afmælismálþing í Þórbergssetri, - Allir velkomnir
Á morgun miðvikudaginn 12. mars verður málþing í Þórbergssetri á Hala í tilefni af því að 120 ár eru liðin frá fæðingu Þórbergs Þórðarsonar. Vonast er eftir að Skaftfellingar líti við í Þórbergssetri á morgun og njóti dagskrárinnar með þeim gestum sem koma til að heiðra minningu meistarans og halda daginn hátíðlegan.
Dagskráin hefst kl 10:00 og stendur til kl 18:00. Þar verða skemmtilegir fyrirlestrar, en einnig les Ragnheiður Steindórsdóttir leikkona úr verkum skáldsins. Farið verður í stutta gönguferð þar sem umhverfi og sögusvið Suðursveitarbókanna verður kannað. Viðar Hreinsson bókmenntafræðingur flytur erindi um Suðursveitarkróniku Þórbergs, sem hann kallar ,,Sveitadrengurinn snýr aftur?. Í tilefni afmælisins hafa verið endurútgefnar tvær af bókum Þórbergs, Bréf til Láru og Steinarnir tala. Erindi ráðstefnunnar verða gefin út síðar í sérstöku riti á vegum Háskóla Íslands ásamt öllum erindunum frá Þórbergssmiðju. Ætla má að ekki færri en 300 manns hafi komið við í hátíðarsal Háskóla Íslands að njóta dagskrárinnar þar um síðustu helgi. Þar frumfluttu m.a. Dr. Gunni og Heiða fjögur lög við ljóð Þórbergs og meðlimir í Baggalút sungu Sósusálminn af innlifun. Þar sannaðist að verk Þórbergs og hugsjónir hans eru enn uppspretta lifandi umræðu um ýmis ólík málefni allt frá skrímslum, heilsurækt og guðspeki yfir í heimspekilegar vangaveltur um lífið og tilveruna og frjóa listsköpun sem sannarlega höfðar til ungs listafólks og hugsuða á 21. öldinni.
Að lokinni dagskrá verður hátíðarkvöldverður í Þórbergssetri. Allir eru velkomnir að koma í Þórbergssetur þennan dag að njóta dagskrárinnar. Einnig er hægt að sækja einstaka dagskrárliði allt eftir óskum og aðstæðum hvers og eins. Þeir sem hyggjast taka þátt í hátíðarkvöldverði eru beðnir að skrá sig í síma 867 ? 2900 eða á hali@hali.is Sjá nánar á www.thorbergur.is



