Menning

Þórbergssetur

Ferðalag um lendur Vatnajökulsþjóðgarðs - 31.03.2008 Menning

Í febrúar var haldinn í Þórbergssetri fyrsti fræðslufundurinn af fjórum í máli og myndum, um landslagið og fólkið á landsvæðinu sem innan skamms mun teljast til Vatnajökulsþjóðgarðs. Þá var fjallað um þjóðgarðinn í Jökulsárgljúfrum. Það er Kári Kristjánsson starfsmaður Skaftafellsþjóðgarðs sem hefur sett dagskrána saman úr eigin myndasafni og miðlar af fróðleik og þekkingu sinni á svæðinu. Nú er komið að næsta kafla, farið verður suður Mývatnsöræfi að fótskör Herðubreiðar. Dagskrá verður í Þórbergssetri fimmtudaginn 3. apríl kl 20:00 og ber nafnið ,,Hátt er til lofts í höllu drottningar....... Lesa meira
 
Rás 2 og Monitor rokka hringinn

Dr. Spock, Sign og Benny Crespo's gang á ferð um landið - 30.03.2008 Menning

Þann 3. apríl munu þrjár af vinsælustu rokkhljómsveitum Íslands í dag halda tónleika hér á Höfn, á vegum Rásar 2 og tímaritsins Monitor. Þetta er þriðja árið í röð sem Rás 2 stendur fyrir tónleikaferð um landið en í ár sameinast kraftar Rásar 2 og Monitor og úr verður stærsta tónleikaferðin til þessa. Helsti tilgangur ferðarinnar er að gefa tónlistaráhugafólki á landsbyggðinni tækifæri til að sjá og heyra fremsta tónlistarfólk landsins af yngri kynslóðinni í heimabyggð og fyrir lítið fé en Dr. Spock, Benny Crespos Gang og Sign ætla að rokka á Selfossi, Vestmannaeyjum, Höfn í Hornafirði, Eskifirði, Akureyri, Reykjanesbæ og í Reykjavík. Lesa meira
 
Þetta er betra

Leynigestur í Sögustundinni á bókasafninu - 28.03.2008 Menning

Krakkarnir sem komu í sögustundina á bókasafninu í Nýheimum í dag fengu óvæntan og spennandi leynigest í heimsókn en það var hesturinn Erpur. Bryndís Hólmarsdóttir sem sér um sögustundina ákvað að koma krökkunum á óvart og það tókst virkilega vel og þeim fannst þetta afskaplega spennandi gestur þó sum væru hálf smeyk í fyrstu. Hræðslan hvarf þegar þau fengu að gefa Erp góðgæti úr lófa sínum og svo að koma á bak. Bryndís sagði krökkunum að Erpur væri að verða 25 ára og litföróttur á litinn sem er þannig að núna er hann brúnn á litinn en þegar kemur fram á vorið breytir hann um lit og verður steingrár á skrokkinn, síðan þegar kemur fram á sumarið byrjar hann að dökkna og fær aftur brúna litinn fyrir veturinn. Lesa meira
 
Afmælissýning Eystrahorns

Eystrahorn 25 ára – ljósmyndasýning - 19.03.2008 Menning

Í Nýheimum hefur verið opnuð sýning á myndum úr ljósmyndasafni Eystrahorns. Tilefnið er 25 ára afmæli blaðsins. Á sýningunni eru einnig gamlar ljósmyndavélar og fleira úr eigu blaðsins. Ljósmyndasafn Eystrahorns, frá upphafi blaðsins til þess tíma er það tók upp stafræna ljósmyndatækni, er varðveitt í Héraðsskjalasafninu og er stærsta einstaka safn ljósmynda sem þar er nú varðveitt. Sýningin í Nýheimum verður opin til 31. mars Lesa meira
 
Páskaeggjamálun

Fjör í páskaeggjamálun - 19.03.2008 Menning

Síðastliðin mánudag var mikið fjör í Menningarmiðstöðinni þegar fjöldi barna kom til að mála á páskaegg og búa til páskaunga úr pappír, síðan var skrautið hengt á trjágreinar (víði, birki o.fl. ) sem klipptar höfðu verið í Einarslundi. |nl|Börnin nutu aðstoðar foreldra og starfsmanna Menningarmiðstöðvarinnar. |nl|Starfsmenn voru búnir að undirbúa málunina áður með því að blása úr 60 eggjum og grunnmála. Mætingin var framar öllum vonum, nær 50 börn mættu og þurftu starfsmenn að taka til við að blása úr fleiri eggjum. Einstaka egg brotnaði við málun en þá var bara að byrja upp á nýtt. Börnin sýndu eindæma þolinmæði gagnvart því að þurfa að bíða eftir að komast að við að mála og líma páskaungana sína. Allt gekk vel og allir fóru sælir heim með sitt páskaskraut. Lesa meira
 
Þórbergsþing

Afmælisveisla í Þórbergssetri - 17.03.2008 Menning

Þann 12. mars síðastliðinn var afmælisveisla í Þórbergssetri. Tilefnið var afmælisdagur Þórbergs Þórðarsonar en nú eru liðin 120 ár frá fæðingu hans. Það mun verða árviss viðburður í Þórbergssetri að gera sér dagamun á þessum merkisdegi (eða þar um kring) en þetta er í annað sinn sem haldið er upp á daginn frá því Þórbergssetur var vígt í júlí 2006. Að þessu sinni samanstóð dagskráin af fyrirlestrum, upplestri, gönguferðum, hátíðamat og söng að ógleymdu „góðu strandi“. Lesa meira
 
Þórbergssetur

Afmælismálþing í Þórbergssetri, - Allir velkomnir - 11.03.2008 Menning

Á morgun miðvikudaginn 12. mars verður málþing í Þórbergssetri á Hala í tilefni af því að 120 ár eru liðin frá fæðingu Þórbergs Þórðarsonar. Vonast er eftir að Skaftfellingar líti við í Þórbergssetri á morgun og njóti dagskrárinnar með þeim gestum sem koma til að heiðra minningu meistarans og halda daginn hátíðlegan. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica