Menning
Þórbergssetur
Þórbergssetur
Frá Þórbergssetri

27.02.2008

Hátíðaþing Háskóla Íslands

Haldið verður hátíðaþing í minningu 120 ára afmælis Þórbergs Þórðarsonar dagana 8.- 9. mars næstkomandi í hátíðarsal Háskóla Íslands. Málþingið hefst kl 10:00 báða dagana og verður fjölbreytt dagskrá í gangi. Fjölmargir fyrirlesarar með ólíkan bakgrunn fjalla um Þórberg og verk hans í málstofum, fólk sem þekkti Þórberg segir frá kynnum sínum við hann, sungin verða lög við ljóð Þórbergs og farið í gönguferð um miðbæinn og staldrað við hjá þeim húsum þar sem Þórbergur bjó. Meðal þeirra fjölmörgu sem koma fram eru Matthías Johannessen og Vilborg Dagbjartsdóttir, Stefán Máni, Soffía Auður Birgisdóttir, Halldór Guðmundsson, Bragi Ólafsson, Dagný Kristjánsdóttir, Guðmundur Andri Thorsson, Pétur Gunnarsson, íslenskunemendur í Háskóla Íslands, Bergljót S. Kristjánsdóttir, dr. Gunni og Heiða og margir fleiri.

Hér er um að ræða metnaðarfulla og fjölbreytta menningardagskrá sem tengist einum merkasta rithöfundi þjóðarinnar á 20. öldinni, Þórbergi Þórðarsyni frá Hala í Suðursveit.
Í tilefni afmælisins verða endurútgefnar tvær af bókum Þórbergs, Bréf til Láru og Steinarnir tala.
Erindi ráðstefnunnar verða gefin út síðar í sérstöku riti á vegum Háskóla Íslands
Gaman væri að sjá Skaftfellinga búsetta á höfuðborgarsvæðinu fjölmenna í hátíðarsal Háskólans þessa daga og fylgjast með dagskrá sem tengist svo sterkt heimabyggð þeirra. Hornfirðingar sem eiga leið í höfuðborgina eru einnig hvattir til að koma við í Háskóla Íslands þessa helgi.

Sjá nánar www.thorbergur.is þegar nær dregur.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica