Myndasýning hjá Skaftfellingafélaginu
Seinna myndakvöld vetrarins hjá Skaftfellingafélaginu verður haldið í Skaftfellingabúð Laugavegi 178 fimmtudaginn 28. febrúar og hefst myndakvöldið kl. 20.00. Sýnd verður kvikmyndin "Síðasti þröskuldurinn" sem Vegagerðin lét gera um framkvæmdir á Skeiðarársandi. Sýndar verða myndir frá ferðalögum yfir Skeiðarársand áður en brúað var og eins frá brúarframkvæmdum. Þá verða einnig sýndar myndir sem Páll Arason tók. Fyrra myndakvöldið var haldið í nóvember en þá var myndefnið úr ýmsum áttum og frá ýmsum tímum. Gamlar myndir frá Ara og Guðjóni Jónssonum og Helga Arasyni Fagurhólsmýri.
Seldar verða léttar veitingar í hléi.



