Jack D. Ives hlaut Menningarverðlaun fyrir bókina Skaftafell í Öræfum–Íslands þúsund ár
Í gær fór fram afhending Menningarverðlaunna fyrir árið 2007 Athöfnin fór fram í Nýheimum. Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, bauð gesti velkomna og svo tók við dagskrá með tónlistaratriðum og styrkveitingum. Anna Lilja Karlsdóttir spilaði á trompet við undirleik Guðlaugar Hestnes og Stakir Jakar fluttu þrjú lög og Þorsteinn Geirsson færði menningarmálanefnd eintök bókar sinnar Gamla hugljúfa sveit. Menningarverðlaun hlaut í ár Jack D. Ives fyrir bókina "Skaftafell í Öræfum - Íslands þúsund ár" og rannsóknir hans í Skaftafelli frá 1952. Í rökstuðningi menningarmálanefndar segir: Öræfasveitin var á þessum tíma eitt afskekktasta hérað landsins, ár óbrúaðar og núttúröfl óblíð. Samstarf Jack D. Ives við Ragnar Stefánsson í Skaftafelli lifir í verkum hans og endurspeglar lífshætti, menningu og störf íbúa Öræfa, um leið og hann beinir sjónum að því lifandi landslagi sem umlykur sveitina.
Í ræðu sinni þakkaði Jack D. Ives þann heiður sem honur er sýndur með þessari viðurkenningu. Á yfir fimmtíu ára viðkynningu hefur hann orðið vitni að miklum breytingum á einu afskekktasta svæði Íslands, svæði sem einkennist af nálægð við jökulinn og eldfjöll og umbrotum í þeim. Stofnun þjóðgarðsins, stærsta þjóðgarði í Evrópu ætti að veita íbúum hér fjölda tækifæra til að auka velsæld um leið og þróun ferðaþjónustu heldur áfram. Í bók sinni fjallar hann um lítinn hluta svæðisins, Skaftafell en verðlaun sem þessi, þar sem varðveisla sögu og menningar er viðurkennd - eru hvatning til þeirra sem sinna sögu og menningarrannsóknum á þessu áhugaverða svæði. Kærar þakkir fyrir hálfrar aldar samleið, fyrir vináttu og sérstaklega fyrir góðvild ykkar í dag.
Einnig voru afhentir styrkir bæjarráðs, æskulýðs- og tómstundaráðs og menningarmálanefndar.
Reynir Arnarson formaður bæjarráðs afhenti eftirfarandi styrki frá bæjarráði:
1. Björgunarfélag Hornafjarðar til starfsemi félagsins og rekstursstarfsstöðvar
2. Björgunarskipið Ingibjörg til starfsemi björgunarskipsins
3. Björgunarsveitin Kári til starfsemi björgunarsveitarinnar
4. Félag eldri Hornfirðinga til starfsemi félagsins
5. Golfklúbbur Hornafjarðar styrk til framkvæmda
6. Páll Heimisson til verkefnisins hlaðvarps
7. Perlan Mýrar jarðfræðistígur við Fláajökul til verkefnisins
8. Skógræktarfélag A-Skaft til starfsemi félagsins
9. Fuglaathugunarstöð Suðausturlands til starfseminnar stöðvarinnar
10. Félagsstarf aldraðra í Öræfum til starfseminnar
11. Nemendafélag Fas til starfsemi félagsins
Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs- og tómstundafulltrúi afhenti styrki fyrir hönd æskulýðs- og tómstundaráðs til eftirgalinna félaga:
1. Ungmennafélagið Sindri
2. Ungmennafélagið Máni
3. Golfklúbbur Hornafjarðar
4. Hestamannafélagið Hornfirðingur
5. Akstursíþróttafélag A-Skaft
Haukur afhenti einnig styrki úr Sérsjóði æskulýðs og tómstundaráðs til:
1. Sveinbjörg Zophoníasdóttur til æfinga- og keppnisferða.
2. Fannar Blær Austar Egilsson til æfinga- og keppnisferða.
3. Jóni Snorri Þorsteinsson til æfinga- og keppnisferða.
4. Sævar Þór Gylfason vegna ferðar tveggja knattspyrnuflokka á alþjóðlegt knattspyrnumót í Noregi í júlí.
Hermann Hansson formaður menningarmálanefndar afhenti fyrir hönd nefndarinnar eftirfarandi styrki:
1. Leikfélag Hornafjarðar
2. Kvennakór Hornafjarðar
3. Karlakórinn Jökull
4. Samkór Hornafjarðar
5. Magnús J. Magnússon
6. Leikhópurinn Lopi
7. Lúðrasveit Hornafjarðar
8. Gleðigjafar
9. Harmónikufélagið
10. Söguslóðir á Suðausturlandi
11. Listvinasjóður Hornafjarðar
Menningarmálanefnd Hornafjarðar hefur frá árinu 1994 veitt menningarverðlaun og í reglum um þau segir m.a. ?að þau skuli veitt einstaklingi, stofnun eða samtökum sem viðurkenning fyrir eftirtektavert framtak á sviði lista og menningar á nýliðnu ári?. Auglýst var eftir tilkynningum í lok síðasta árs en nefndarmenn geta einnig komið með tilnefningar.
Í ár voru eftirtaldir tilnefndir til Menningarverðlauna Hornafjarðar 2007:
- Eiríkur Hansson, kennari, fyrir störf hans með Lego- hópnum
- Gunnlaugur Þröstur Höskuldsson tónlistarkennari fyrir starf að tónlistarmálum.
- Hjalti Egilsson fyrir störf hans með Ungmennafélaginu Mána.
- Hlynur Pálmason fyrir ljósmyndasýningar, stuttmyndagerð og listsýningu á Humarhátíð.
- Jack D. Ives fyrir bókina "Skaftafell í Öræfum - Íslands þúsund ár", og rannsóknir hans í Skaftafelli frá 1952.
- Kvennakór Hornafjarðar á tíu ára afmælisári.
- Lúðrasveit Hornafjarðar, fyrir Landsmót íslenskra lúðrasveita.
- Magnús J. Magnússon fyrir mikið starf að leiklistarmálum í Austur-Skaftafellssýslu hjá Leikhópnum Lopa og Leikfélagi Hornafjarðar.
- Sigurður Bjarnason, Hofsnesi, fyrir störf hans og miðlun sagna af gömlum og nýjum tímum.
- Sigurður Björnsson, Kvískerjum, fyrir fræðistörf og skrif.
- Ungmennafélagið Máni í Nesjum, á 100 ára afmælisári og fyrir sýninguna Fiðlarinn á þakinu.
- Þorsteinn Geirsson frá Reyðará, fyrir fræðistörf og skrif.



