Menning
Svavar Guðnason málverk
Svavar Guðnason málverk
Málverk Svavars Guðnasonar (úr myndasafni Menningarmiðstöðvar)

07.02.2008

Hofnfirsk verkefni fá styrk frá Menningarráði Austurlands

Menningarráð Austurlands úthlutaði í gær, miðvikudag, styrkjum til um 85 menningarverkefna á Austurlandi, samtals að upphæð 31,8 milljónir króna. Hæstu styrkir námu 1,1 milljón króna en þeir lægstu 100 þúsund krónum. Alls bárust menningarráðinu 120 styrkumsóknir að þessu sinni. Eftirtalin hornfirsk verkefni hlutu styrk: Leikhópurinn Lopi 100 þúsund fyrir Sumarævintýri,  Þorsteinn Geirsson 100 þús. fyrir bókina um lífið í Lóni á síðustu öld,  Karlakórinn Jökull 200 þús vegna, Aðventutónleikar, Kvennakór Hornafjarðar 300 þús. vegna Landsmót Kvennakóra 2008, Hlynur Pálmason 400 þús. vegna tveggja kvikmyndaverkefna, Hornfirska skemmtifélagið 600 þús. vegna Norðurljósablús, Þórbergssetur 750 þús. vegna Samvinnuverkefnis Þórbergsseturs og Gunnarsstofnunar og tónleika í kirkju Ólafs helga á Kálfafellsstað, Söguslóð á Suðausturlandi 1 milljón vegna verkefnisins Papaslóð á Íslandi.

Menningarmiðstöð Hornafjarðar 1 milljón vegna málþings um handverk og hönnun, sýning hornfirskra áhugaljósmyndara, munnleg hefð - þróun margmiðlunarefnis og vegna sýningar á ljósmyndum Brian Griffin

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica