Menning

Þórbergssetur

Hátíðaþing Háskóla Íslands - 27.02.2008 Menning

Haldið verður hátíðaþing í minningu 120 ára afmælis Þórbergs Þórðarsonar dagana 8.- 9. mars næstkomandi í hátíðarsal Háskóla Íslands. Málþingið hefst kl 10:00 báða dagana og verður fjölbreytt dagskrá í gangi. Fjölmargir fyrirlesarar með ólíkan bakgrunn fjalla um Þórberg og verk hans í málstofum, fólk sem þekkti Þórberg segir frá kynnum sínum við hann, sungin verða lög við ljóð Þórbergs og farið í gönguferð um miðbæinn og staldrað við hjá þeim húsum þar sem Þórbergur bjó. Meðal þeirra fjölmörgu sem koma fram eru Matthías Johannessen og Vilborg Dagbjartsdóttir, Stefán Máni, Soffía Auður Birgisdóttir, Halldór Guðmundsson, Bragi Ólafsson, Dagný Kristjánsdóttir, Guðmundur Andri Thorsson, Pétur Gunnarsson, íslenskunemendur í Háskóla Íslands, Bergljót S. Kristjánsdóttir, dr. Gunni og Heiða og margir fleiri. Lesa meira
 
Myndasýning hjá Skaftfellingafélaginu

Myndasýning hjá Skaftfellingafélaginu - 25.02.2008 Menning

Seinna myndakvöld vetrarins hjá Skaftfellingafélaginu verður haldið í Skaftfellingabúð Laugavegi 178 fimmtudaginn 28. febrúar og hefst myndakvöldið kl. 20.00. Sýnd verður kvikmyndin „Síðasti þröskuldurinn” sem Vega­gerðin lét gera um framkvæmdir á Skeiðarársandi. Sýndar verða myndir frá ferðalögum yfir Skeiðarársand áður en brúað var og eins frá brúarframkvæmdum. Þá verða einnig sýndar myndir sem Páll Arason tók. Fyrra myndakvöldið var haldið í nóvember en þá var myndefnið úr ýmsum áttum og frá ýmsum tímum. Gamlar myndir frá Ara og Guðjóni Jónssonum og Helga Arasyni Fagurhólsmýri. Lesa meira
 
Menningarverðlaun fyrir 2007

Jack D. Ives hlaut Menningarverðlaun fyrir bókina Skaftafell í Öræfum–Íslands þúsund ár - 16.02.2008 Menning

Í gær fór fram afhending Menningarverðlaunna fyrir árið 2007 Athöfnin fór fram í Nýheimum. Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, bauð gesti velkomna og svo tók við dagskrá með tónlistaratriðum og styrkveitingum. Anna Lilja Karlsdóttir spilaði á trompet við undirleik Guðlaugar Hestnes og Stakir Jakar fluttu þrjú lög og Þorsteinn Geirsson færði menningarmálanefnd eintök bókar sinnar Gamla hugljúfa sveit. Menningarverðlaun hlaut í ár Jack D. Ives fyrir bókina “Skaftafell í Öræfum – Íslands þúsund ár” og rannsóknir hans í Skaftafelli frá 1952. Í rökstuðningi menningarmálanefndar segir: Öræfasveitin var á þessum tíma eitt afskekktasta hérað landsins, ár óbrúaðar og núttúröfl óblíð. Samstarf Jack D. Ives við Ragnar Stefánsson í Skaftafelli lifir í verkum hans og endurspeglar lífshætti, menningu og störf íbúa Öræfa, um leið og hann beinir sjónum að því lifandi landslagi sem umlykur sveitina. Lesa meira
 
Þórbergur Þórðarson

Hátíðahöld og málþing á 120 ára árstíð Þórbergs Þórðarsonar - 11.02.2008 Menning

Þann 12. mars næstkomandi eru liðin 120 ár frá fæðingu Þórbergs Þórðarsonar rithöfundar frá Hala í Suðursveit. Háskóli Íslands, Þórbergssetur og Háskólasetrið á Hornafirði standa fyrir málþingum í tilefni þessara tímamóta. Helgina 8. – 9. mars verður málþing og samkoma á vegum Háskóla Íslands þar sem fjöldi fyrirlesara og listamanna koma fram. Miðvikudaginn 12. mars verður síðan dagskrá í Þórbergssetri frá klukkan 10 um morguninn og fram eftir degi. Mikill fjöldi fyrirlesara tekur þátt í afmælisþingunum á báðum stöðum. Þar má nefna m.a. Viðar Hreinsson bókmenntafræðing sem ætlar að fjalla um Suðursveitarbækur Þórbergs. Bækurnar Bréf til Láru og Steinarnir tala,- hin fyrsta í ritröðinni um Suðursveit, - verða gefnar út að nýju með formála eftir Soffíu Auði Birgisdóttur bókmenntafræðing Á þingunum verður fjallað um hin ýmsu verk Meistara Þórbergs svo sem Ævisögu Árna Þórarinssonar, Sálminn um blómið og ritgerðir Þórbergs. Án efa kemur fram ný sýn á þessi sígildu verk höfundarins og verður forvitnilegt að kynnast nýjum viðhorfum til verka skáldsins. Lesa meira
 
Svavar Guðnason málverk

Hofnfirsk verkefni fá styrk frá Menningarráði Austurlands - 07.02.2008 Menning

Menningarráð Austurlands úthlutaði í gær, miðvikudag, styrkjum til um 85 menningarverkefna á Austurlandi, samtals að upphæð 31,8 milljónir króna. Hæstu styrkir námu 1,1 milljón króna en þeir lægstu 100 þúsund krónum. Alls bárust menningarráðinu 120 styrkumsóknir að þessu sinni. Eftirtalin hornfirsk verkefni hlutu styrk: Leikhópurinn Lopi 100 þúsund fyrir Sumarævintýri, Þorsteinn Geirsson 100 þús. fyrir bókina um lífið í Lóni á síðustu öld, Karlakórinn Jökull 200 þús vegna, Aðventutónleikar, Kvennakór Hornafjarðar 300 þús. vegna Landsmót Kvennakóra 2008, Hlynur Pálmason 400 þús. vegna tveggja kvikmyndaverkefna, Hornfirska skemmtifélagið 600 þús. vegna Norðurljósablús, Þórbergssetur 750 þús. vegna Samvinnuverkefnis Þórbergsseturs og Gunnarsstofnunar og tónleika í kirkju Ólafs helga á Kálfafellsstað, Söguslóð á Suðausturlandi 1 milljón vegna verkefnisins Papaslóð á Íslandi. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica