Menning
Kvennakórskonur á Hala
Kvennakórskonur á Hala
Á Hala er mjög notalegt að fara í heita pottin og að sjálfsögðu nýttu kvennakórskonur sér það þegar þær héldu æfingarbúðir þar. (@EÞ)
Mynd 1 af 2
1 2

13.01.2008

Menningarsjóður Hlaðvarpans styrkir Kvennakór Hornafjarðar

Í fyrsta sinn sem Menningarsjóður Hlaðvarpans úthlutar styrkjum eru veittir 19 styrkir að upphæð samtals 10 milljónir kr. til menningarmála kvenna. Kvennakór Hornafjarðar hlaut 400 þúsund króna styrk vegna landsmót íslenskra kvennakóra sem kvennakórinn heldur á Hornafirði í sumar. Alls bárust á sjötta tug umsókna og nam upphæðin sem sótt var um nærri 600 millj. kr. sem sýnir hve þörfin er gríðarleg og gróskan mikil. Árið 1985 ákvað hópur kvenna að festa kaup á húsunum við Vesturgötu 3 í Reykjavík. Þau voru þá í nokkurri niðurníðslu og hætta á að þessi glæsilegu hús yrðu rifin. Ákveðið var að stofna hlutafélag og fékk það nafnið Hlaðvarpinn. Þar er skemmst frá að segja að smátt og smátt voru húsin gerð upp og þar blómstraði ýmis konar menningarstarfsemi um árabil. Þar var rekið leikhús, bæði í kjallara og sal, haldin fjöldi tónleika og funda.

Herbergi voru leigð út til félaga og fræðikvenna og þannig mætti áfram telja. Viðgerðir og rekstur voru félaginu þung í skauti og skuldir söfnuðust upp. Þar koma að ákveðið var að hætta rekstrinum og selja húsin. Í lögum Hlaðvarpans var kveðið á um að ef félagið yrði lagt niður skyldi andvirði húsanna varið til að styrkja menningarstarfsemi kvenna.

Ákveðið var að stofna sjóð og tók nokkurn tíma að móta stefnu hans. Nú er komið að fyrstu styrkveitingunni og sýnir fjöldi umsókna hve menningarstarfsemi kvenna er frjó og fjölbreytt.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica