Menning

Járnhurðin

Þjóðsögur íslenskar munnmælasögur - 30.01.2008 Menning

Sýning á verkum íslenskra teiknara sem tókust á hendur það verkefni að myndskreyta þjóðsögur úr munnlegri geymd. Teiknararnir eru þekktir fyrir myndskreytingar í íslenskum barnabókum og tengist sýningin alþjóðlegum degi barnabókarinnar. Sögurnar eru valdar úr hljóðritum í þjóðfræðasafni Árnastofnunar. Sýningin tengist einnig verkefninu Munnleg hefð sem unnin er í samvinnu Árnastofnunar, Háskólaseturs á Hornafirði og Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar þar sem upptökur með frásögnum Austur-Skaftfellinga eru afritaðar og skráðar. Lesa meira
 
Þórbergssetur

Ferðalag um lendur Vatnajökulsþjóðgarðs - 23.01.2008 Menning

Í vetur er fyrirhugað að vera með menningardagskrá í Þórbergssetri, fyrirlestraröð þar sem sýslubúum verður boðið í ferðalag um lendur hins víðfeðma og tilvonandi Vatnajökulsþjóðgarðs. Fyrsti fundurinn af fimm verður í Þórbergssetri fimmtudaginn 31. janúar kl 20:00 Til hagræðis fyrir þá sem ætla að koma langt að verður hægt að fá léttan kvöldverð í Þórbergssetri áður en dagskráin byrjar. Áhugafólk um útivist, náttúrufræði og sögu ætti alls ekki að láta þessa fræðslufundi fram hjá sér fara. Auk þess er þetta kjörið tækifæri fyrir ferðaþjónustuaðila í Ríki Vatnajökuls að koma saman, fræðast og efla félagsandann fyrir komandi vertíð. Dagskráin stendur í einn og hálfan klukkutíma hverju sinni, kaffiveitingar eru í fundarhléi og opið inn á sýningar í Þórbergssetri. Ferðalagið hefst í Ásbyrgi undir fyrirsögninni: SÖGN ER AÐ EITT SINN..... Lesa meira
 
Peter Máté

Petet Máté með masterklass og tónleika - 21.01.2008 Menning

Peter Máté fyrrverandi organisti og tónlistarkennari á Stöðvarfirði, Breiðdalsvík og Fáskrúðsfirði verður með tónleika um austurland vikuna 23. – 28 janúar.Hann byrjar á Djúpavogi, spilar tónleika og heimsækir skóla. Mánudaginn 28. jan. verður hann svo í Hafnarkirkju. Hér ætlar hann að vera með masterklass fyrir tónskólann og spila sjálfur á eftir stutta tónleika. Masterklass byggir á því að nemendur (í þessu tilfelli píanónemendur) undirbúa eitt tónverk/lag og spila fyrir áhorfendur, Pétur gefur síðan góð ráð eftir hvern flutning til nemandans í áheyrn gesta. 6-7 nemendur munu spila og áætlum við að það taki ca. klukkustund þá spilar Pétur 50 mín. tónleika. Lesa meira
 
Kvennakórskonur á Hala

Menningarsjóður Hlaðvarpans styrkir Kvennakór Hornafjarðar - 13.01.2008 Kvennakór Hornafjarðar

Í fyrsta sinn sem Menningarsjóður Hlaðvarpans úthlutar styrkjum eru veittir 19 styrkir að upphæð samtals 10 milljónir kr. til menningarmála kvenna. Kvennakór Hornafjarðar hlaut 400 þúsund króna styrk vegna landsmót íslenskra kvennakóra sem kvennakórinn heldur á Hornafirði í sumar. Alls bárust á sjötta tug umsókna og nam upphæðin sem sótt var um nærri 600 millj. kr. sem sýnir hve þörfin er gríðarleg og gróskan mikil. Árið 1985 ákvað hópur kvenna að festa kaup á húsunum við Vesturgötu 3 í Reykjavík. Þau voru þá í nokkurri niðurníðslu og hætta á að þessi glæsilegu hús yrðu rifin. Ákveðið var að stofna hlutafélag og fékk það nafnið Hlaðvarpinn. Þar er skemmst frá að segja að smátt og smátt voru húsin gerð upp og þar blómstraði ýmis konar menningarstarfsemi um árabil. Þar var rekið leikhús, bæði í kjallara og sal, haldin fjöldi tónleika og funda. Lesa meira
 
Þórbergssetur

Gestagangur á Hala yfir jól og áramót - 11.01.2008 Menning

Gistiheimilið á Hala er opið allt árið og í vetur hefur verið töluverður gestagangur. Frá því um 20 desember eru skráðar um 50 gistinætur á Hala fyrir utan vini og vandamenn sem hafa verið í heimsókn.Það eru nær eingöngu erlendir ferðamenn sem leita eftir gistingu á þessum tíma. Á aðfangadagskvöld var fjögurra manna frönsk fjölskylda í dvöl á Hala, þau komu reyndar matarlaus, áttuðu sig ekki á að verslanir og veitingastaðir væru lokuð yfir jólin Þau urðu einnig fyrir þeirri leiðinlegu reynslu að tapa ferðatöskunum sínum á Heathrow flugvelli og voru farangurslaus að ferðast um Ísland yfir jólahátíðirnar, síðast fréttist af þeim í Húnavatnssýslu, þá voru þau búin að fara austur á Egilsstaði, heimsækja Mývatn í hríðarbyl og aka áfram um Norðurland án þess að fá farangurinn sinn eða föt til skiptanna, hvað þá jólagjafirnar. Virtust þau taka þessu af miklu æðruleysi og án efa hafa þetta verið eftirminnileg jól. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica