Menning

Afhending Menningarverðlauna 2007

Auglýst eftir tilnefningum til Menningarverðlauna 2007 - 27.12.2007 Menning

Menningarmálanefnd Hornafjarðar auglýsir nú eftir tilnefningum til Menningarverðlauna Hornafjarðar fyrir árið 2007. Í reglum um verðlaunin segir: Verðlaunin eru veitt einstaklingi, stofnun eða samtökum sem viðurkenning fyrir eftirtektarvert framtak á sviði lista og menningar á nýliðnu ári. Hlutverk verðlaunanna er einnig að vera almenn hvatning til eflingar menningar- og listastarfs í sveitarfélaginu. Menningarverðlaun fyrir árið 2006 hlutu Hornfirska Skemmtifélagið og Þórbergssetur Lesa meira
 
Jólagjafalistinn

Leikhópurinn Lopi frumsýnir jólasýningu í dag - 16.12.2007 Menning

Leikhópurinn Lopi er með jólasýningu í Mánagarði núna á aðventunni, leikritið heitir Jólagjafalistinn og er höfundur þess Magnús J. Magnússon, leikritið er einnig í leikstjórn hans. Sýningin fjallar um nokkra krakka sem ferðast um fjöllin í leit að vinum sínum. Fram koma í sýningunni ýmsar skemmtilegar persónur þar á meðal Grýla og Leppalúði , tröll, álfar og dvergar. Sýningin er klukkutíma löng og fyrir alla aldurshópa. Leikarar í sýningunni eru 19 og hefur verið unnið að þessu verkefni undanfarnar vikur. Þetta er 15. starfsár Leikhópsins og er þetta 20. frumsýningin sem hér fer á fjalirnar. Frumsýning er sunnudaginn 16. desember kl. 17.00 og er eins og áður er sagt í Mánagarði. Lesa meira
 
Pakkhúsið séð frá bryggju

Jólabókaupplestur í Pakkhúsinu í kvöld – ný dagskrá: Veikar og viðbeinsbrotnar skáldkonur forfallast! - 06.12.2007 Menning

Í kvöld kl. 20 hefst upplestrardagskrá í Pakkhúsinu þar sem lesið verður úr glóðvolgum jólabókum. Dagskráin er haldin á vegum Listvinafélags Hornafjarðar. Gestalistinn hefur tekið smávægilegum breytingum þar sem skáldkonan Kristín Marja Baldursdóttir er lögst í jólaflensu og Þórunn Erlu- Valdimarsdóttir datt af hjólinu sínu og viðbeinsbrotnaði (rétt áður en hún var tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna – fall er fararheill!) En margir góðir gestir eru væntanlegir: Sigmundur Ernir Rúnarson les upp úr ævisögunni Guðni – Af lífi og sál; Sigurður Hannesson les upp úr bók nafna síns Björnssonar frá Kvískerjum, Sótt fram; Halldóra Kristín Thoroddsen les upp úr skáldverki sínu Aukaverkanir; Bjarni Bjarnason les upp úr skáldsögu sinni Bernharður Núll; Hrund Þórisdóttir les upp úr verðlaunabarnabókinni Loforðið og Þorsteinn Geirsson les upp úr Gömlu hugljúfu sveit. Lesa meira
 
Loforðið

Árlegur jólabókaupplestur í Pakkhúsinu - 05.12.2007 Menning

Hinn árlegi jólabókaupplestur verður í Pakkhúsinu á fimmtudagskvöld kl. 20. Þar les Hrund Þórsdóttir úr bók sinni Loforðið sem er barnabók og var valin besta sagan í samkeppni um íslensku barnabókaverðlaunin 2007. Kristín Marja Baldursdóttir les úr bók sinni Óreiða á striga en það er sjálfstætt framhald af bók hennar Karitas án titils frá árinu 2004. Sigurður Pálsson les úr bók sinni Minnisbók þar sem hann segir frá námsárum sínum í Frakklandi á árunum 1967-1982 og Þorsteinn Geirsson les úr nýrri bók sinni Gamla hugljúfa sveit. Sigurður Hannesson les valda kafla úr nýútkominni bók Sigurðar Björnssonar á Kvískerjum, Sótt fram. Þá ætlar Soffía Auður Birgisdóttir að lesa úr nýútkomnum ljóðabókum nokkurra kvenna. Lesa meira
 
Kvennakórinn á jólatónleikum

Jólatónleikar kvennakórs Hornafjarðar - 03.12.2007 Kvennakór Hornafjarðar

Jólatónleikar Kvennakórs Hornafjarðar verða miðvikudaginn 5. desember kl 20 í Nýheimum á Höfn. Efnisskráin er fjölbreytt að vanda, rammíslensk jólalög í bland við erlenda smelli. Stjórnandi kórsins er Svavar Sigurðsson og píanóleikari er Jónína Einarsdóttir. Að vanda er boðið upp á tertuhlaðborð þar sem borðin svigna undan hnallþórum og allskyns brauðréttum. Á liðnum árum hefur áhorfendafjöldi aukist svo að ljóst er að tónleikar kórsins skipa veglegan sess á aðventu bæjarbúa. Á tónleikunum verða hljóðfæraleikarar og krakkar úr grunnskólanum sem syngja með kórnum. Hægt verður að nálgast dagatölin vinsælu á tónleikunum þar sem þau verða til sölu við innganginn. Lesa meira
 
Málverk Svavars Guðnasonar

Þjóðhátíðarsjóður úthlutaði Menningarmiðstöð og háskólasetrinu styrk - 03.12.2007 Menning

Nú um helgina var úthlutað styrkjum úr Þjóðhátíðarsjóði og Menningarmiðstöðin á Hornafirði og Háskólasetur á Höfn fegnu styrki til verkefna sem unnið er að. Menningarmiðstöðin fékk tvo styrki. Annar styrkurinn 600.000 kr. er til skráningar á verkum Svavars Guðnasonar. Vinna við skráninguna hófst vorið 2007 og á verkinu að ljúka í febrúar 2008. Þegar hafa um 500 verk verið skráð í gagnagrunn, ljósmynduð og mæld auk þess sem eigendasaga verkanna er skráð. Markmið slíkrar skráningar er að fá heildaryfirlit yfir verk Svavars sem eru fjölmörg og dreifð víða um heim. Verk hans teljast tvímælalaust eitt merkasta framlag íslensks listmálara til sameiginlegs menningararfs þjóðarinnar og heildarskráning verka hans grundvallaratriði og jafnframt frumforsenda fyrir varðveislu, rannsóknum og til skilnings á verkum hans. Skráningin kemur til með að styrkja stöðu Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar – Listasafns sem sérsafns um líf og störf Svavars Guðnasonar. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica