Menning

Sótt fram

SÓTT FRAM, bók Sigurðar Björnssonar á Kvískerjum kynnt á bókamessu í Þórbergssetri - 30.11.2007 Menning

Sunnudaginn 2. desember, hinn fyrsta í aðventu verður áhugaverð bókakynning í Þórbergssetri á Hala. |nl|Auk kynningar á bók Péturs Gunnarssonar um Þórberg Þórðarson verða margar áhugaverðar bækur kynntar er tengjast umhverfi og sögu okkar Skaftfellinga. Sérstök athygli er vakin á kynningu Hjörleifs Guttormssonar á bókinni Skaftafell í Öræfum - Íslands þúsund ár eftir Jack D. Ives. Í bókinni koma m.a. fram hugleiðingar Jack D Ives um þjóðgarða og starfsemi þeirra. Jack D. Ives sagði í blaðaviðtali fyrir nokkrum árum að stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs væri í raun heimsviðburður, sérstaða þessa svæðis sé slík og að hvergi í heiminum sé til heildstæð saga mannlífs sem hefur þróast í svo sterku sambýli við eld og ís eins og í Skaftafellssýslum. Lesa meira
 
Bók Sigurðar Björnssonar, Sótt fram, afhent höfundi

Sótt fram, saga Sýslunefndar Austur-Skaftafellssýslu og þættir úr Öræfum. - 28.11.2007 Menning

Menningarmiðstöð Hornafjarðar hefur gefið út bókina ,,Sótt fram´´ þar sem birtir eru fjórir sjálfstæðir þættir eftir Sigurð Björnsson á Kvískerjum . Í fyrsta þætti bókarinnar er saga sýslunefndar Austur-Skaftafellssýslu sem hafði afskipti af mörgum framfaramálum í sýslunni.Saga hennar hófst árið 1873 áður en barnakennsla byrjaði, áður en vegir voru lagðir um sýsluna og áður en læknir kom í héraðið og Höfn varð til. Annar þáttur bókarinnar nefnist Öræfin-sagan og sagnir sem hefst við landnám Ingólfs, síðan er stiklað á stóru í sögu sveitarinnar fram á okkar daga og fylgst með lífi fólks í gleði og raun, framförum og hamförum í Öræfasveit. Þriðji þáttur bókarinnar er Ættarsaga þar sem Sigurður bregður upp skýrum myndum af fólkinu og setur sig í spor þess og mætti þá stundum ætla að hann hefði verið uppi á 18.eða 19.öld svo vel gerir hann sögupersónunum skil. Lesa meira
 
Mugison2

Mugison, Rottweiler meðal tónlistaviðburða næstu viku - 24.11.2007 Menning

Nú nálgast jólin og er þó nokkuð síðan að verslanir og veitingastaðir hér á Höfn byrjuðu að setja upp jólaljós. Eins og fólk hefur tekið eftir á Skjávarpi þá er úrval af hverskonar jólahlaðborðum, julefoukost, litlujólum með allskonar uppákomum í kringum þá viðburði. Á þriðjudag verða þematónleikar hjá Tónskólanum og að þessu sinni verða það kvikmyndatónlist sem verður fyrir valinu. Um kvöldið verður síðan hinn frægi Mugison með tónleika í Pakkhúsinu og hefjast þeir kl.21. Miða á þessa tónleika er hægt að nálgast á Bókasafninu í Nýheimum. Tónlistarviðburðir í næstu viku eru ekki upptaldir því á föstudagskvöld kl.22 XXX Rottweiler hundarnir í Sindrabæ á vegum FAS. Lesa meira
 
Skaftfellingafélagðið

Myndasýning hjá Skaftfellingafélaginu og Hornafjarðarmannamót - 21.11.2007 Menning

Á morgun fimmtudaginn 22. nóvember kl. 20:00 verður myndasýning í hjá Skaftfellingafélaginu í Skaftfellingabúð Laugavegi 178. Myndefnið verður úr ýmsum áttum og frá ýmsum tímum. Gamlar myndir frá Ara og Guðjóni Jónssonum og Helga Arasyni Fagurhólsmýri; Skýringar frá Guðjóni Jónssyni og Jón Guðna Arasyni, Guðjón þekkir vel fyrstu ár Skaftfellingafélagsins og Skógræktina. Gamlar myndir frá ættarmóti, Stefán Bjarnason frá Hofi segir frá og Gunnþóra Gunnarsdóttir Hnappavöllum. Myndir frá Jakobi Guðlaugssyni. Fjöruferðir og fleiri myndir Skaftafelli og Skeiðarásandi og umhverfi. Skýringar frá Heiðari Jakobssyni og/eða Sigurði Jakobssyni. Seinasta fimmtudag, 15. nóvember var spilakvöld hjá Skaftfellingafélaginu og kom þá Sigurpáll Ingibergsson og kenndi Hornafjarðarmót. Kennslan gekk með ágætum og var haldið mót og lauk með því að 3 hæstu voru leystir út með viðurkenningum. Lesa meira
 
Mynd eftir Svavar Guðnason

Heildarskráning á myndlist Svavars Guðnasonar - 19.11.2007 Menning

Í tilefni af því að árið 2009 verða 100 ár liðin frá fæðingu Svavars Guðnasonar og fyrirhugaðri útgáfu veglegrar bókar um list hans, er verið að vinna að heildarskrá yfir verk listamannsins. Menningarmiðstöð Hornafjarðar vinnur að skráningu verkanna og er farið með upplýsingar um eigendur sem trúnaðarmál. Eigendur myndverka eftir Svavar Guðnason eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Þorbjörgu Gunnarsdóttur í síma 697 9649 eða með tölvupósti á netfangið: thorbjorgbr@gmail.com. Þess má geta að Menningarmiðstöð hefur hlotið styrk frá Þjóðhátíðarsjóði til að vinna þetta verkefni. Með þessari skráningu verður þekkingu um líf og störf Svavars safnað á einn stað og hlutverk Menningarmiðstöðvar – Listasafns sem miðstöðvar þar sem safnað er heimildum um hornfirska listamenn styrkt. Lesa meira
 
Pétur Gunnarsson rithöfundur

Bókamessa í Þórbergssetri á aðventu - 19.11.2007 Menning

Sunnudaginn 2. desember, hinn fyrsta í aðventu verður bókamessa á Þórbergssetri á Hala í Suðursveit. Bókamessan hefst klukkan 14:00. Lesið verður upp úr nýjum bókum og fjallað um efni þeirra. Jólahlaðborð fyrir alla fjölskylduna verður að Smyrlabjörgum síðdegis eða frá kl. 16:30-20:00. Á bókamessunni mun Pétur Gunnarsson rithöfundur ríða á vaðið og lesa úr bók sinni ÞÞ – Í fátæktarlandinu, Þroskasaga Þórbergs Þórðarsonar, sem kom út á Degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember. Í ummælum útgefanda um bókina segir:,,Í bókinni leitast Pétur Gunnarsson við að endurskapa þroskasögu Þórbergs og leitar víða fanga, ekki aðeins í útkomnum verkum heldur ríkulegu óbirtu efni; sendibréfum, dagbókum og óútgefnu ævisöguhandriti. Dregin er upp mynd sem á eftir að koma nýjum aðdáendum Þórbergs á óvart.” Í bókinni er einnig fjallað um uppvaxtarár Þórbergs í Suðursveit. Lesa meira
 
Útileikskóli teiknað í snjóinn og norrænbókavika í Nýheimum

Líf og fjör á Bókasafninu - 14.11.2007 Menning

Á Bókasafninu hefur verið mikið líf og fjör síðustu daga. Krakkar frá Lönguhólum, Krakkakoti og Nesjaskóla hafa komið í heimsókn og hlustað á upplestur úr Línu Langskokk bókum Astrid Lindgren. Síðustu daga hefur borið á ferðum furðulegra karla sem starfsmenn Bókasafnsins hafa grunaða um að ásælast þann fjársjóð sem bækurnar okkar eru og hafa krakkarnir hjálpað til við að fylgjast með þeim og hindra þá í ferkari axarsköftum. Svo vel vildi til að Lína Langsokkur átti leið um Bókasafnið og tókst henni að halda þjófunum þar til bókalöggan mæti og handsamaði þjófana. Að öllu þessu loknu settust krakkarnir ásamt Línu niður og fengu sér Línu-klatta en Lína segir að það séu bestu lummur í heimi. Lína á aftur leið um Bókasafnið á fimmtudag klukkan 14 og eru allar Rúllugardínur, Línur og Ronjur velkomnar á Bókasafnið ásamt öllum þeim sem vilja koma í heimsókn á Bókasafnið. Lesa meira
 
Skaftafell_bokin

Skaftafell í Öræfum - Íslands þúsund ár - 08.11.2007 Menning

Hinn 16. nóvember næstkomandi kemur út bókin Skaftafell í Öræfum – Íslands þúsund ár eftir breska fjallavistfræðinginn Dr. Jack D. Ives.Þorsteinn Bergsson á Unaósi íslenskaði og er útgefandi Ormstunga. Jack D. Ives fæddist í Grimsby árið 1931. Hann útskrifaðist sem landfræðingur frá háskólanum í Nottingham 1953. Á námsárunum skipulagði hann og stjórnaði rannsókna¬leiðöngrum enskra háskólanema til Íslands þar sem kannaðir voru m.a. Morsárjökull, Svínafellsjökull og Skaftafellsjökull. Bæði masters- og doktorsverkefni hans fjölluðu um Öræfin og Morsárjökul. Jack er einn af höfundum Ríó-sáttmálans og nýtur alþjóðlegrar viðurkenningar vegna rannsókna sinna á fjallahéruðum um allan heim. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica